Alistair Darling í hættu á að missa þingsæti sitt

darling.jpg
Auglýsing

Ný skoð­an­anna­könn­un, sem greint var frá í dag, sýnir að stuðn­ingur við Verka­manna­flokk­inn í Skotlandi er í sögu­legri lægð og að Alistair Dar­l­ing, fyrrum fjár­mála­ráð­herra Bret­lands sem leiddi hreyf­ingu sam­bands­sinna í nýlegum sjálf­stæð­is­kosn­ingum í Skotlandi, sé í mik­illi hættu á að missa sæti sitt á breska þing­inu. Frá þessu er greint í Edin­burgh Even­ing News.

Skoskir flokkar fá alls 59 sæti á breska þing­inu, West­min­ster, og í dag er sitja þing­menn skoska Verka­manna­flokks­ins í 41 þeirra.  Könn­unin sem birt var í morgun sýnir hins vegar að fylgi við Verka­manna­flokk­inn í Skotlandi mælist nú ein­ungis 27 pró­sent. Sam­kvæmt þeirri nið­ur­stöðu myndi flokk­ur­inn fá 16 þing­menn, og þar með tapa 25. Einn þeirra sem er í mik­illi hættu á að tapa þing­sæti sínu er Alistair Dar­l­ing, sem er í dag þing­maður suð­vest­ur­-Ed­in­borg­ar. Kosið verður á Bret­landi á næsta ári.

Kosn­inga­bar­áttan skað­aði flokk­inn



Dar­l­ing var í for­svari fyrir „Better Together“ fylk­ing­una, sem barð­ist hart gegn sjalfstæði Skotlands í aðdrag­anda kosn­inga um slíkt sem fram fóru 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Það fór svo að Skotar sögðu Nei í kosn­ing­un­um.

Margir frétta­skýrendur eru þeirrar skoð­unar að lof­orð leið­toga stærstu stjórn­mála­flokka Bret­lands um aukin völd til Skotlands ef almenn­ingur myndi hafna sjálf­stæði hafi skipt sköpum í þeirri nið­ur­stöðu. Síðan þá hafa verið uppi miklar gagn­rýn­is­raddir um hvort leið­tog­arnir þrír, David Camer­on, Nick Clegg og Ed Milli­band, hafi í raun haft eitt­hvað umboð til að lofa slíkri aukn­ingu á völd­um. Við­ræður um valda­til­færsl­una eiga að hefj­ast á morgun og verður stýrt af Smith Lávarði af Kel­vin.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None