Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, gerði kjör eldri borgara að umtalsefni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í vikunni.
Hún spurði hvað gæti komið í veg fyrir að leyfa fátæku fólki að reyna sig á vinnumarkaði ef það hefði heilsu og getu til. „Hvað í veröldinni getur komið í veg fyrir að aldraður einstaklingur sem vill vinna áfram skuli vera skertur slíkt og þvílíkt að ekki er nokkur hagur af því heldur er hann látinn fara heim og sitja þar og bíða eftir sinni hinstu ferð?“
Sagði hún að það væri ekkert nema ávinningur af því að gefa fólki kost á því að bjarga sér sjálft í stað þess að með vitund og vilja stjórnvalda væri algjörlega einbeittur vilji til að halda þessu fólki áfram í rammgerðri fátækt. „Það er þjóðarskömm að skattleggja fátækt,“ sagði hún.
„Þessi kúgun“ bitnar á fátækasta fólkinu í landinu
Inga hélt áfram og benti á að Flokkur fólksins hefði mælt fyrir frumvarpi sem kveður á um 350.000 króna lágmarksframfærslu, skatta- og skerðingarlaust.
„Hvernig er farið með það? Þeir sem hafa í rauninni sjaldan þurft að dýfa hendi í kalt vatn og vita ekki hvað það er að berjast í fátækt virðast engan veginn geta sett sig í spor þeirra samlanda sinna sem eiga virkilega bágt. Þessir sömu háu herrar, æðstu embættismenn þjóðarinnar, furða sig hvað mest á því hvernig stendur á öllum þessum andlegu bágindum. Af hverju líður okkur svona illa? Við skulum ekki gleyma því að þetta ástand, þessi kúgun, bitnar á fátækasta fólkinu í landinu og bitnar fyrst og síðast á börnunum sem eiga að byggja landið,“ sagði hún að lokum.