Læknarnir Tómas Guðbjartsson og Óskar Einarsson segja að ákvörðun um umdeilda barkaígræðsluaðgerð, sem lögregla í Svíþjóð hefur hafið rannsókn á, hafi verið tekin í góðri trú. Þeir sendu frá sér yfirlýsingu vegna málsins í dag, en RÚV greinir frá málinu.
Ítalskur læknir gerði aðgerðina sem var gerð á Karólinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi árið 2011. Tómas tók þátt í aðgerðinni og hann og Óskar voru meðhöfundar greinar um aðgerðina sem var birt í læknaritinu The Lancet. Í ljós hefur komið að greinin var byggð á fölskum forsendum, og nokkrir sjúklingar hafa látist eftir að hafa farið í sambærilegar aðgerðir.
„Vegna frétta um að Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi hafi verið kært til lögreglu vegna barkaígræðsluaðgerða sem gerðar voru á spítalanum viljum við koma eftirfarandi á framfæri.
Undirritaðir tóku ásamt fleiri íslenskum læknum þátt í meðferð fyrsta sjúklingsins sem fékk ígræddan plastbarka með stofnfrumum á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í júní 2011. Líkt og áður hefur komið fram í fjölmiðlum hafði sjúklingurinn greinst með illvígt æxli í barka tæpum tveimur árum áður. Hann hafði gengist undir umfangsmiklar aðgerðir og geislameðferð án árangurs. Leitað var eftir ráðgefandi áliti til erlendra sjúkrahúsa, m.a. í Bandaríkjunum. Niðurstöður voru að ekki væri hægt að fjarlægja æxlið með skurðaðgerð og því mælt með líknandi meðferð þar sem lífshorfur voru taldar í mánuðum.
Að ósk sjúklingsins var leitað annarra leiða og var þá haft samband við Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Læknar þar lögðu til að græddur yrði i sjúklinginn barki úr plasti þakinn stofnfrumum. Slík aðgerð hafði aldrei verið gerð áður í heiminum en undirbúningur hafði staðið um nokkurt skeið í London og Stokkhólmi. Sjúklingnum, fjölskyldu og læknum hans á Íslandi, var ljóst að um tilraunameðferð væri að ræða, sem þó byggði á fyrri reynslu ígræðslna barka úr látnum einstaklingum. Aðgerðin var skilgreind sem lífsbjargandi enda voru ekki aðrar meðferðarleiðir mögulegar þegar þarna var komið. Ákvörðun um aðgerðina var tekin í góðri trú enda er Karolinska sjúkrahúsið eitt það virtasta í heimi.
Annar undirritaðra (TG) aðstoðaði við aðgerðina, að ósk lækna á Karolinska og sjúklingsins sjálfs, enda gert áður á honum stóra aðgerð. Framan af komst sjúklingurinn til betri heilsu en síðar komu upp vandamál og lést hann í byrjun síðasta árs á Karolinska sjúkrahúsinu um tveimur og hálfu ári eftir að aðgerðin var framkvæmd.
Undirritaðir hafa ekkert komið að meðferð annarra barkaígræðslusjúklinga en við erum tveir af 28 meðhöfundum á grein í hinu virta læknatímariti Lancet sem fjallaði um fyrstu aðgerðina. Var hlutverk okkar fyrst og fremst að lýsa líðan sjúklings fyrir aðgerðina. Greinin var send inn til birtingar rúmum 4 mánuðum frá aðgerðinni og birt nokkrum vikum síðar, áður en að vandkvæði vegna aðgerðarinnar komu í ljós. Við höfum aðstoðað báða málsaðila við rannsóknina og sent þeim gögn til að auðvelda rannsókn málsins. Þar sem málið er til rannsóknar getum við ekki tjáð okkur frekar um það að svo stöddu. “