Segja stjórnarmeirihlutann stilla öryrkjum upp á móti útlendingum

Tillaga þingmanns Pírata um að taka af dagskrá frumvarp um alþjóðlega vernd var felld á Alþingi. Stjórnarandstöðuþingmenn segja það fáránlegt að afgreiða eigi frumvarpið áður en eingreiðsla til öryrkja verði tekin fyrir á þingi.

Tillaga Andrésar Inga Jónsson, þingmanns Pírata, um að fresta umræðu um breytingu á lögum um útlendinga fram yfir áramót var felld við upphaf þingfundar. Stjórnarandstaðan sakar meirihlutann um að setja fjölda mála í uppnám með þessu.
Tillaga Andrésar Inga Jónsson, þingmanns Pírata, um að fresta umræðu um breytingu á lögum um útlendinga fram yfir áramót var felld við upphaf þingfundar. Stjórnarandstaðan sakar meirihlutann um að setja fjölda mála í uppnám með þessu.
Auglýsing

Til­laga Andr­ésar Inga Jóns­son­ar, þing­manns Pírata, um að taka af dag­skrá þing­fundar frum­varp um alþjóð­lega vernd og fresta fram yfir ára­mót, var felld við upp­haf þing­fundar í dag með 30 atkvæðum gegn 21.

Andrés Ingi sagði það óábyrgt af meiri­hlut­anum að ætla að tefla í tví­sýnu fjölda mála sem liggja fyrir þingi með því að setja útlend­inga­frum­varpið á dag­skrá. Með því sé verið að fresta öðrum brýn­ari mál­um, líkt og almanna­trygg­ingum og ein­greiðslu til öryrkja.

Auglýsing
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði for­gangs­röðun dag­skrár­mála fárán­lega. Frum­varpið sé ekki full­unn­ið, í því séu vís­bend­ingar um að verið sé að brjóta á stjórn­ar­skrár­vörðum rétt­ind­um.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er verið að setja það hérna fremst á dag­skrá á eftir fjár­lög­um, störfum þings­ins, fram yfir ein­greiðslu almanna­trygg­inga, ein­fald­lega af því að við munum vera hérna til að tala um það hvernig rík­is­stjórnin er að brjóta á stjórn­ar­skrár­vörðum rétt­indum fólks. Þangað til það verður lag­að, mjög ein­fald­lega, þá verðum við nátt­úr­lega sökuð um mál­þóf til að koma í veg fyrir ein­greiðslu öryrkja. Þetta er bara fárán­leg­t,“ sagði Björn Leví.

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­maður Pírata, tók í sama streng. „Þetta eru mál sem þurfa að klárast, þetta eru mál sem ættu að vera fyrst á dag­skrá. Í stað­inn er sett mál sem er vitað að ef það kemur á dag­skrá verður það rætt enda­laust.“

Út­lend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra er komið úr nefnd, nán­ast óbreytt, og er þriðja mál á dag­skrá þing­fundar dags­ins. Stjórn­ar­flokk­arnir leggja til bráða­birgða­breyt­ingu um að nokkur hópur fólks með börn, sem ekki var hægt að senda úr landi vegna veiru­far­ald­urs­ins, fái dval­ar­leyfi hér­lend­is.

Ekki full­búið til umræðu í þing­sal

Þing­menn Pírata sögðu frum­varpið ekki til­búið til umræðu í þingsal, til að mynda eigi eftir að taka fyrir beiðnir varð­andi nán­ari grein­ingu á þeim áhrifum sem frum­varpið hefur á stjórn­ar­skrár­bundin rétt­indi og rétt­indi sem varin eru með mann­rétt­inda­sátt­málum sem Íslandi er aðili að, líkt og Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, benti á.

Bryn­dís Har­alds­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar sem afgreiddi frum­varpið úr nefnd­inni, sagð­ist ekki telja neina ástæðu til að taka málið af dag­skrá þing­fun­ar. Hún sagði veru­lega umræðu nú þegar hafa farið fram þar sem þetta er í fimmta sinn sem frum­varp til breyt­inga á útlend­inga­lögum er lögð fram. Sagði hún málið full­unnið af hálfu nefnd­ar­inn­ar.

Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði málið ekki vera full­unnið en að frum­varpið yrði sam­þykkt af meiri­hlut­anum sem mun hafa í för með sér skerð­ingu á rétt­indum fólks á flótta.

„Þetta er svo ógeð­fellt“

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Pírata, sagði meiri­hlut­ann vera að beita fyrir sig fram­gangi kjara­bóta til öryrkja til að drepa umræðu um útlend­inga­mál. „Þetta mun tefja gríð­ar­lega mik­il­væg mál sem allir eru sam­mála um hér í þessum þing­sal og það er aug­ljóst hver til­gang­ur­inn er,“ sagði Arn­dís Anna.

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, benti á að Trygg­inga­stofnun geti ekki afgreitt ein­greiðslu til öryrkja fyrr en fjár­auka­lög og frum­varp vel­ferð­ar­nefndar verði sam­þykkt. „Það er raun­veru­leg neyð hjá fólki, en ein­hverra hluta vegna þá finnst stjórn­ar­meiri­hlut­anum hér á Alþingi meira aðkallandi að skerða rétt­indi útlend­inga en að afgreiða þessi mál sem er alger sam­staða um hérna í þing­sal. Þetta er svo ógeð­fellt,“ sagði Jóhann Páll.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki