Ekki upplýst formlega en leitað til hennar „í krafti vináttu og persónulegra tengsla“

Forsætisráðherra segir að hún hafi ekki verið upplýst formlega um að ráðherra hafi sýnt af sér vanvirðandi framkomu. Þegar leitað sé til hennar sem trúnaðarvinar sé um persónuleg málefni að ræða sem kalli ekki á að hún setji þau í farveg stjórnsýslumála.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki verið upp­lýst form­lega um að ein­hver ráð­herra í rík­is­stjórn hafi sýnt af sér van­virð­andi fram­komu, svo sem ein­elti, áreitni eða ann­ars konar ofbeld­i. 

Að því er varðar óform­leg sam­skipti segir for­sæt­is­ráð­herra hins vegar að stundum sé leitað til hennar „í krafti vin­áttu og per­sónu­legra tengsla og á hún oft og tíðum trún­að­ar­sam­töl við fólk, m.a. um sam­skipti á jafn fjöl­mennum vinnu­stað og Stjórn­ar­ráð Íslands er. Ráð­herra hefur litið svo á að þegar leitað er til hennar sem trún­að­ar­vinar þá sé um per­sónu­leg mál­efni að ræða sem alla jafna kalli ekki á að hún setji þau í far­veg stjórn­sýslu­mála, nema óskað sé eftir því.“ 

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um mál­ið. 

Auglýsing
Þar segir líka að ef grunur sé um ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni eða ofbeldi í þeim málum sem sé komið óform­lega á fram­færi við for­sæt­is­ráð­herra sé leit­ast við að leið­beina við­kom­andi um réttan far­veg þess­ara mála á grund­velli við­bragðs­á­ætl­unar Stjórn­ar­ráðs­ins um EKKO (ein­elti, kyn­bundin áreitni, kyn­ferð­is­leg áreitni, ofbeldi) sem tók gildi 16. júní síð­ast­lið­inn.

Rík­is­stjórnin ekki fjöl­skipað stjórn­vald

Í svari sínu segir Katrín að það sé rétt að árétta að  rík­is­stjórn Íslands sé ekki fjöl­skipað stjórn­vald og ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands beri óskor­aða ábyrgð á þeim stjórn­ar­fram­kvæmdum sem heyra undir ráðu­neyti þeirra. Sam­kvæmt for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna milli ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands og for­seta­úr­skurð um skipt­ingu starfa ráð­herra beri hver og einn ráð­herra ábyrgð á skipu­lagi, rekstri og starfs­manna­haldi sinna ráðu­neyta. „Fram­an­greind við­bragðs­á­ætlun er skýr um þann far­veg sem mál eiga að fara í og hvert starfs­menn eiga að leita þegar þeir hafa orðið fyrir ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stað. Þá er skýrt kveðið á um að allar upp­lýs­ingar um máls­með­ferð­ina séu trún­að­ar­mál og vistaðar með öðrum við­kvæmum per­sónu­grein­an­legum mannauðs­gögn­um.“

Sam­kvæmt EKKO-­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins skal starfs­um­hverfi og menn­ing í ráðu­neytum vera þannig að starfs­fólk sé öruggt og því líði vel. Í svari Katrínar segir að í því sam­bandi sé mik­il­vægt að stuðla að and­legri jafnt sem lík­am­legri heilsu á vinnu­stað. „Það er gert með mark­vissu for­varna­starfi, skýrum verk­ferlum og stuðn­ingi. Sam­kvæmt stefn­unni er ein­elti, kyn­ferð­is­leg áreitni, kyn­bundin áreitni og ofbeldi undir engum kring­um­stæðum umborið og eru allar ábend­ingar um slíkt teknar alvar­lega. Þá skal í EKKO-til­vikum fylgja til­tek­inni for­varna- og við­bragðs­á­ætlun sem nánar er útfærð í stefn­unn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent