Sér ekki högg á vatni á eigin fé bankanna þótt þeir ætli að borga út 32,5 milljarða í arð

Þrátt fyrir að kerfislega mikilvægir bankar greiði út tugi milljarða króna í arð til eigenda sinna mun eigið fé þeirra nánast standa í stað. Fjármálastöðugleikanefnd telur bankana hafa gott svigrúm til að mæta hækkun sveiflujöfnunaraukans.

Bankarnir
Auglýsing

Eig­in­fjár­hlut­fall kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka var 24,8 pró­sent í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Það hafði lækkað um 0,1 pró­sentu­stig frá síð­ustu ára­mótum þegar búið er að draga frá þá þann hluta hagn­aðar fyrstu níu mán­uði árs­ins, alls 32,5 millj­arða króna, sem bank­arnir ætla að greiða í arð til eig­enda sinna á árinu 2022  

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem Seðla­banki Íslands sendi fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn og hefur verið birt á vef bank­ans. 

Þar segir að eig­in­fjár­hlut­föllin séu sex til sjö pró­sentu­stigum fyrir ofan þá lág­marks eig­in­fjár­kröfu sem Seðla­bank­inn ger­ir. Bank­arnir hafi því gott svig­rúm til að mæta hækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans í tvö pró­sent í sept­em­ber árið 2022.

Sveiflu­jöfn­un­ar­auki end­ur­vak­inn

Sveiflu­­­jöfn­un­­­ar­­­auki Seðla­­­bank­ans eru við­­­bót­­­ar­­­kröfur á eigið fé fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækja umfram lög­­­bundnar eig­in­fjár­­­­­kröfur til að sporna gegn miklum sveiflum í fjár­­­­­mála­­­kerf­inu. Ef mikil hætta er á þenslu getur Seðla­­­bank­inn hækkað auk­ann til að koma í veg fyrir of mik­inn útlána­vöxt, en ef hætta er á sam­drætti getur bank­inn lækkað auk­ann til að efla útlána­­­getu fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækj­anna. 

Þegar sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­inn var afnumin í mars í fyrra var það gert til að auka þrótt efna­hags­lífs­ins til að takast á við afleið­ingar kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins ­með því að skapa svig­­­rúm til nýrra útlána sem átti að nema allt að 350 millj­­­örðum króna. Þorri þessa svig­­rúms hefur verið nýtt í að lána til hús­næð­is­­kaupa. 

Auglýsing
Fjármálastöðugleikanefnd ákvað í sept­em­ber síð­ast­liðnum að end­­ur­vekja sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­ann til að auka þrótt kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja til að lána heim­ilum og fyr­ir­tækj­u­m. 

Nefndin taldi ekki lengur þörf á því við­bót­ar­svig­rúmi. Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar frá þeim tíma sagði að það væri  mat hennar að hratt hækk­­andi eigna­verð sam­hliða auk­inni skuld­­setn­ingu heim­ila, hefði nú þegar fært sveiflu­tengda kerf­is­á­hættu að minnsta kosti á sama stig og hún var fyrir útbreiðslu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Nefndin hefur því ákveðið í ljósi auk­innar upp­­­söfn­unar sveiflu­tengdrar kerf­is­á­hættu að hækka sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka á fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki úr 0 pró­­sent í 2 pró­­sent. Ákvörðun nefnd­­ar­innar tekur gildi að 12 mán­uðum liðnum í sam­ræmi við þær reglur sem um sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­ann gilda. Sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­inn sann­aði gildi sitt í far­aldr­inum og hefur nefndin tekið til skoð­unar hvert hlut­­laust gildi sveiflu­­jöfn­un­­ar­aukans eigi að vera til fram­­tíð­­ar.“

Einn banki ætlar að skila allt að 88 millj­örðum til hlut­hafa

Sá kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna sem hefur leitt útgreiðslur til hlut­hafa sinna á því tíma­bili sem liðið er frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á er Arion banki. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 greiddi Arion banki 25,5 millj­­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs upp á 2,9 millj­­arða króna með end­­ur­­kaupum á eigin bréfum þeirra upp á 22,7 millj­­arða króna. 

­Bank­inn hefur þegar til­­kynnt að hann ætli að kaupa eigin bréf af hlut­höfum fyrir tíu millj­­arða króna á síð­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins og greiða þeim 11,3 millj­­arða króna í arð. Það þýðir að frá byrjun árs og með þeim arð- og end­­ur­­kaupa­greiðslum sem hann hefur þegar ákveðið mun Arion banki skila 46,8 millj­­örðum króna til hlut­hafa sinna. 

Í kynn­ingu á mark­aðs­degi Arion banka, sem fór fram í nóv­em­ber, kom fram að von sé á meiru. Miðað við mark­mið Arion banka um hvert eig­in­fjár­­hlut­­fall hans ætti að vera telja stjórn­­endur bank­ans hægt að losa um 30,1 millj­­arð króna til við­­bótar til hlut­hafa án þess að fara niður fyrir þau mörk. Ef salan á greiðslu­mið­l­un­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Valitor til ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem ákveðin var í sum­­­ar, verður sam­­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu eiga að losna á bil­inu átta til ell­efu millj­­arðar króna til við­­bótar sem hægt yrði að greiða út til hlut­hafa. 

Því er ljóst að ef áform Arion banka um arð­greiðslur og end­­ur­­kaup frá byrjun síð­­asta árs og þangað til að hlut­­fall eig­in­fjár­þáttar 1 hjá bank­­anum er komið niður í 17 pró­­sent ganga eft­ir, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ilar söl­una á Valitor, munu hlut­hafar hans fá um 84,9 til 87,9 millj­­arða króna út úr honum frá byrjun árs 2020 og þar til þessu útgreiðslu­­ferli er lok­ið. 

Til sam­an­­burðar má nefna að heild­­ar­hagn­aður Arion banka, Íslands­­­banka og Lands­­bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 var 60,1 millj­­arðar króna. Það var meiri hagn­aður en þessir þrír kerf­is­lega mik­il­vægu bankar hafa hagn­­ast um innan árs síðan 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent