Sérfróðir og fjárfestar efast um hagkvæmni reksturs álvers við Hafursstaði

Klappir-Development_NFC_Undirritun-viljayfirl--singar-1.jpg
Auglýsing
Bæði fjár­festar og sér­fróðir menn efast um hag­kvæmni rekst­urs álvers við Haf­urs­staði skammt sunnan við Skaga­strönd. Til þess sé fyr­ir­huguð stærð þess of lít­il. Eig­andi Klappa Develop­ment, sem ætlar sér að byggja álver­ið, segir ætlun sína að fá líf­eyr­is- og fjár­fest­inga­sjóði á Íslandi til að fjár­festa í rekstr­in­um. Eng­inn af helstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hefur hins vegar fengið slíkt erindi inn á borð til sín. Frá þessu var greint í kvöld­fréttum RÚV.
Í gær var greint frá því að félagið Klappir Develop­ment ehf. og  China Non­fer­rous Metal Industry´s For­eign Engineer­ing and Construct­ion (NFC) hefðu und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um fjár­mögnun á bygg­ingu 120 þús­und tonna álvers við Haf­urs­staði í Skaga­byggð. ­Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Zhang Weidong, sendi­herra Kína á Íslandi, fluttu ávörp við und­ir­rit­un­ina, sem fór fram í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu síð­degis á mið­viku­dag.











Ingvar Unn­steinn Skúla­son, sem sam­kvæmt hluta­fé­laga­skrá er eini eig­andi Klappa Develop­ment, sagði við RÚV í dag að ætl­unin væri að álverið yrði í eigu Íslend­inga og að leitað yrði til fjár­fest­inga- og líf­eyr­is­sjóða vegna þessa. Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa hins vegar ekki fengið slíkt erindi inn á sitt borð.

Ekki er til orka til að starf­rækja álver­ið, verði það byggt, og Lands­virkjun hefur ekk­ert tjáð sig um málið en fyr­ir­tækið hefur ekki sýnt mikla til­burði til þess að selja orku til álvera á Íslandi und­an­farin miss­eri. Þvert á móti hefur fyr­ir­tækið verið að leit­ast eftir að selja orku til ann­ars orku­freks iðn­aðs sem greiðir hærra verð og þarf minni orku í starf­semi sína. Helstu rök þeirra sem standa að verk­efn­inu við Haf­urs­staði fyrir vænt­an­legri orku­öflun er að fyrir ára­tugum síðan hefði verið lofað að orka sem feng­ist úr Blöndu yrði nýtt í heima­byggð.

Auglýsing

Í fréttum RÚV kom einnig fram að miklar efa­semdir væru á meðal sér­fróðra manna í áliðn­aði og fjár­festa um að 120 þús­und tonna álver myndi borga sig.











Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None