Sérstakur saksóknari og skattrannsóknarstjóri sóttu bæði um embætti héraðssaksóknara

olafur--or.jpg
Auglýsing

Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, og Bryn­dís Björk Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri sóttu bæði um emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en umsókn­ar­frestur um starfið er nú útrunn­inn. Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem hefur sak­sótt nokkur af stærstu hrun­málum þess, sæk­ist einnig eftir starf­inu. Það gera Jón H. B. Snorra­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og Hulda Elsa Bjög­vins­dóttir sak­sókn­ari líka.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara mun fara með ákæru­vald á lægra ákæru­valds­stigi, ákæru­með­ferð saka­mála og sak­sókn fyrir hér­aðs­dómi, Þá mun emb­ættið ann­ast lög­reglu­rann­sóknir í skatta- og efna­hags­brota­mál­um, ásamt rann­sóknum á brotum starfs­manna lög­reglu og brotum gegn vald­stjórn­inni. Starf­semi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra mun því flytj­ast til þess þegar emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara tekur til starfa 1. jan­úar 2016.

Auglýsing

Þrjú vilja í Hæsta­rétt



Í til­kynn­ingu inn­an­rík­is­ráðu­eyt­is­ins segir frá því að frestur til umsóknar um þrjú emb­ætti sé runn­inn út: Emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara, emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og vara­hér­aðs­sak­sókn­ara. Þrír sækj­ast eftir því að verða skip­aðir dóm­arar við Hæsta­rétt: Davíð Þór Björg­vins­son, Ing­veldur Ein­ars­dóttir og Karl Axels­son. Bæði Ing­veldur og Karl hafa verið settir hæsta­rétt­ar­dóm­arar og Davíð Þór er fyrrum dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu. ­Stefnt er að því að skipa í emb­ættið frá og með 1. októ­ber næst­kom­andi eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni dóm­ara hefur lokið starfi sínu

Fimm sóttu um starf vara­hér­aðs­sak­sókn­ara. Björn Þor­valds­son og Hulda Elsa Björg­vins­dóttir sækj­ast líka eftir því starfi, líkt og starfi hér­aðs­sak­sókn­ara. Það gera Arn­þrúður Þór­ar­ins­dótt­ir, Kol­brún Bene­dikts­dóttir og Daði Krist­jáns­son einnig.

Í til­kynn­ing­unni segir að ráðu­neytið hafi ákveðið að fela nefnd að fara yfir umsókn­irnar og á hún að skila Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra rök­studdu áliti á hæfni umsækj­enda. ­Gert er ráð fyrir að skipað verði í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara frá og með 1. sept­em­ber 2015 og mun hann vinna að und­ir­bún­ingi að því að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara taki til starfa 1. jan­úar 2016. Gert er ráð fyrir því að skipað verði í emb­ætti vara­hér­aðs­sak­sókn­ara frá og með 1. jan­úar 2016.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None