Sérstakur saksóknari rannsakar nokkur mál tengd SpKef

spkef.jpg
Auglýsing

Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara er með til rann­sóknar nokkur mál tengd Spari­sjóðnum í Kefla­vík, einnig þekktum sem SpKef, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Rann­sókn mál­anna er langt komin og þess er að vænta að ákvörðun verði tekin um hvort þau muni leiða til ákæru innan skamms. Nið­ur­skurður á fjár­fram­lögum til emb­ætt­is­ins gætu þó tafið lok rann­sókn­anna þar sem hluti þeirra rann­sak­enda sem hefur sinnt þeim rann­sóknum hefur verið sagt upp störf­um.

Fyrr í þess­ari viku gaf emb­ættið út ákæru á hendur fyrrum for­stjóra SPRON og fjórum stjórn­ar­mönnum sjóð­ins vegna meintra umboðs­svika þegar SPRON lán­aði Exista tvo millj­arða króna þann 30. sept­em­ber 2008. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans snúa þau mál sem tengj­ast spari­sjóðum lands­ins, og eru enn til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, öll að Spari­sjóðnum í Kefla­vík.

Afkoma kjarna­rekst­urs nei­kvæð árum saman



Spari­sjóð­ur­inn í Kefla­vík virð­ist, sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóð­ina sem kom út í apríl 2014, hafa verið einna verst rek­inn allra spari­sjóð­anna. Vaxta­munur hans var til að mynda oft­ast lægri en hjá öllum hinum sjóð­un­um, útlán hans virð­ast hafa verið ótrú­lega illa und­ir­byggð og afkoma sjóðs­ins var nán­ast ein­vörð­ungu bundin við gengi hluta­bréfa sem hann átti.

Vegna þess­ara þátta var afkoma sjóðs­ins af kjarna­rekstri nei­kvæð frá árinu 2003 og fram að þeim degi þeg­ar  hann féll.  Sam­tals nam tapið 30 millj­örðum króna, en þorri þeirrar upp­hæðar kom til á árunum 2008 og 2009. Til að setja slakan und­ir­liggj­andi rekstur sjóðs­ins í sam­hengi nam tap af kjarna­rekstri hans, hefð­bund­inni banka­starf­semi, 700 millj­ónum króna á árinu 2006 þrátt fyrir að kynntur hagn­aður fyrir skatta væri tæpir 5,6 millj­arðar króna.

Auglýsing

spkefskyrsla End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PwC gerði svarta skýrslu um starf­semi spari­sjóðs­ins sem skilað var í apríl 2011. Kjarn­inn birti skýrsl­una í heild sinni í ágúst 2013.

Mjög léleg útlán



Út­lánin sem Spari­sjóð­ur­inn í Kefla­vík veitti voru mörg hver mjöh léleg. Lán til vensl­aðra aðila voru umtals­verð, 90 pró­sent útlána sem voru með veði í hluta­bréfum voru tryggð með veði í óskráðum bréf­um, verð­mæti trygg­inga var í mörgum til­vikum langt undir láns­fjár­hæð og ofmet­ið.

geirmundur Geir­mundur Krist­ins­son var spari­sjóðs­stjóri SpKef árum sam­an­.

Spari­sjóð­ur­inn var hins vegar lítið fyrir að fram­kvæma veð­köll og því var fyr­ir­séð löngu áður en sjóð­ur­inn féll að mikil útlána­töp sem höfðu ekki verið bók­færð væru fram und­an.

 

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar er farið yfir stærstu lán­tak­endur sjóðs­ins. Í úrtak­inu sem tekið var voru 23 lána­hóp­ar. Fyr­ir­greiðsla til þeirra nam ell­efu millj­örðum króna í lok árs 2007 en hafði hækkað í 24,3 millj­arða króna í lok árs 2008, meðal ann­ars vegna geng­is­breyt­inga. Þessir hópar fengu sam­tals 26,6 pró­sent af heild­ar­út­lánum spari­sjóðs­ins. Þorri hóps­ins eru umsvifa­miklir aðilar í atvinnu­líf­inu á Suð­ur­nesj­um. Í skýrsl­unni segir að „sér­greindar nið­ur­færslur vegna þess­ara lána­hópa í úrtak­inu námu sam­tals tæp­lega 45% af virð­is­rýrnun útlána og krafna spari­sjóðs­ins í lok árs 2008 og rúmum 35% í lok árs 2009“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None