Sérstakur saksóknari fór fram á að refsiramminn fyrir markaðsmisnotkunarbrot yrði fullnýttur auk þess sem tekið yrði tillit til 72. greinar almennra hegningarlaga um aukna refsingu þegar héraðdómur fellir dóma yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Ingólfi Helgasyni í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Það þýðir að embætti sérstaks saksóknara fer fram á að þeir fái allir níu ára fangelsisdóma. Frá þessu er greint á mbl.is.
Björn Þorvaldsson, saksóknari málsins, lauk í dag málflutningi sínum. Hann tiltók ekki sérstaklega hvaða refsingu hann krefjist yfir hinum sex sakborningunum í málinu.
Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson hlutu báðir þunga dóma í Al Thani málinu.
Fleiri mál eftir gagnvart þremenningunum
Þrír sakborninganna í markaðsmisnotkunarmálinu voru dæmdir til þungrar refsingar í Al Thani-málinu svokallaða í febrúar. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, voru allir dæmdir sekir í Al-Thani málinu í Hæstarétti í málinu, ásamt Ólafi Ólafssyni, sem átti tæplega tíu prósent hlut í Kaupþingi fyrir fall hans. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.
Aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmálinu á síðan að ljúka í þessari viku, en þar er ákærðu gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hlutabréfa í Kaupþingi, frá hausti 2007 og fram að falli bankans haustið 2008, og aukið seljanleika þeirra með „kerfisbundnum“ og „stórfelldum“ kaupum, eins og segir í ákæru, í krafti fjárhagslegs styrks bankans. Hreiðar Már, Sigurður og Magnús eru allir ákærðir í málinu.
Hreiðar, Magnús og Sigurður eru svo einnig ákærðir í CLN-málinu en þar er þeim gefið að sök að hafa misnotað stöðu sína sem stjórnendur bankans í lánveitingum til nokkurra félaga sem voru í eigu viðskiptavina bankans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþing banka, eða svokölluð Credit Linked Notes, með það að markmiði að lækka álagið og freista þess að opna fyrir fjárveitingar til bankans á markaði.
Þriðja málið sem er fyrir dómstólum, og beinist að Kaupþingsstjórnendum, er Marple-málið svonefnda, en Hreiðar Már og Magnús eru ákærðir í því ásamt Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra bankans, og Skúla Þorvaldssyni, fjárfesti og fyrrverandi stórs hluthafa Kaupþings. Ákært er fyrir fjárdrátt, þegar færðir voru átta milljarðar króna úr sjóðum Kaupþings til félagsins Marple, sem var í eigu Skúla Þorvaldssonar, án þess að heimild væri fyrir því.
Hámark níu ára fangelsi
Heimild er í hegningarlögum að auka við refsingu sem þegar hefur komið fram með dómi, og bæta við hana allt að helmingi, ef menn hafa ítrekað verið dæmdir fyrir lögbrot. Níu ára fangelsi er að það mesta sem Kaupþingsmenn geta fengið, þegar allt er tekið, og ef sakfellt verður í öðrum málum. Í ljósi fordæmis úr Al Thani málinu, gæti sú staða komið upp að refsiramminn yrði fullnýttur áður en málin yrðu til lykta leidd í dómskerfinu sem að þeim beinast. Þá kæmi til mats á því, hjá embætti sérstaks saksóknara, hvort það væri þess virði að fara fram með málin af fullum þunga í dómskerfinu og leiða þau til lykta.