Samtök iðnaðarins hafa óskað eftir fundi með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra vegna „skaðlegra áhrifa gjaldeyrishaftanna á íslensk iðnfyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni og á hraðvaxandi fyrirtæki á sviði nýsköpunar.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum sem send var fjölmiðlum.
Afrit af bréfinu var sent Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra, en tilefni bréfsins eru fréttir af yfirvofandi brotthvarfi iðnfyrirtækisins Promens af landi brott vegna gjaldeyrishaftanna.
Í fréttatilkynningunni lýsa samtökin sig reiðubúin til samvinnu við stjórnvöld um að greina stöðu mála varðandi samkeppnishæfni alþjóðlegra fyrirtækja hér á landi, leggja mat á umfang þess skaða sem höftin hafa þegar valdið og að útfæra mögulegar leiðir til að bæta stöðna innan ásættanlegs tímaramma. Þá leggja SI ríka áherslu á að sérstaklega vrði hugað að aðstöðu íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegri starfsemi þegar tímasett og þrepaskipt áætlun um afnám hafta verði sett fram.
„Um er að ræða enn eitt dæmið um alvarlegar afleiðingar þess að loka landinu með höftum. Raunveruleg merki sjást nú um að samkeppnisstaða Íslands og möguleikar til uppbyggingar alþjóðlegra fyrirtækja í landinu séu í hættu. Promens er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki landsins og það verður mikill missir af höfuðstöðvum þess úr landi. Slík fyrirtæki ættu að sjá sér hag í að stýra uppbyggingu sinni frá Íslandi. Því miður vitum við til þess að fleirifyrirtæki, bæði stór og smá, sem starfa í alþjóðlegu umhverfi íhuga að flytja höfuðstöðvar sínar burt héðan. Þetta er grafalvarleg staða og það er ekki hægt að draga það lengur að bregðast við. Í umhverfinu á Íslandi þurfa að felast fleiri tækifæri samfara auknu menntunarstigi og eflingu iðnmenntunar,“ er haft eftir Almari Guðmundssyni framkvæmdastjóra SI í fréttatilkynningu samtakanna.