Gimi Levakovic, höfuðpaur einnar alræmdustu glæpafjölskyldu Danmerkur, var í gær dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi og gert að yfirgefa landið þegar afplánun lýkur. Levakovic, sem oft er kallaður "Sígaunastjórinn" (e. Gypsy boss og d. Sigøjnerbossen) hlaut dóminn í héraðsdómi í Næstved fyrir líflátshótanir og vopnaburð. Hann varð einn umtalaðasti maður Danmerkur í janúar síðastliðnum eftir að danska sjónvarpsstöðin TV2 sýndi tvo sjónvarpsþætti um Levakovic fjölskylduna. Þættirnir voru gerðir með samþykki fjölskyldunnar og þar eru löng viðtöl við Gimi Levakovic og Jura bróðurson hans sem nú afplánar 5 ára dóm og verður vísað úr landi.
Kjarninn fjallaði ítarlega um fjölskylduna í fréttaskýringu í janúar síðastliðnum.
Levakovic var vægast sagt ósáttur með dóminn. Á Facebook-síðu um hann eru birt harðorð skilaboð eftir að dómurinn lá fyrir. Skilaboðin segja að hann ætli að taka alla fríu peninganna sem hann hafi komist yfir með sér og biður Dani að muna að hann muni snúa aftur. Og í þetta sinn ætli hann sér að taka með alla Rúmeníu. Með skilaboðunum er birt mynd með áletruninni „Fuck the system“. Vert er að veita því athygli að á Facebook er Gimi kallaður Gimi ´the Boss´ Levakovic og hann titlaður sem stjórnmálamann.
Fuck jer Danmark og jeres dansker racist Pia Kjersgard. Jeg allerede tager med mig jeres gratis penge, fuck jer. Men HUSK Danmark, jeg kommer tilbage, og ikke kun mig, men hele rumænien !! Tak og velbekomme.Posted by Gimi 'the Boss' Levakovic on Thursday, August 6, 2015
Ætlaði alltaf að vera gangster
Í þáttunum um fjölskylduna sem sýndir voru í upphafi árs segist Jura, sem er 26 ára, alltaf hafa ætlað sér að verða gangster, það verði hver að finna sína fjöl í lífinu og þetta sé sín fjöl. Hann lýsti mikilli óánægju með að verða sendur með rútu til Króatíu þegar afplánun lýkur, slíkt væri viðbótarrefsing. Hann sagði jafnframt að hann hefði verið átta ára þegar hann fór að fara með föður sínum í ránsferðir, til að læra aðferðirnar, og hann hefði sjálfur byrjað að stela þegar hann var 13 ára.
Í umfjöllun Kjarnans um sjónvarpsþættina í janúar kom meðal annars fram þegar ættarhöfuðið Gimi Levakovic var spurður hvernig á því stæði að hann hefði aldrei unnið neitt þá svaraði hann því til að hann áliti að til þess að fá vinnu þyrfti menntun og hana hefði hann ekki. „Hefurðu aldrei íhugað að afla þér menntunar?“ spurði sjónvarpsmaðurinn. „Nei, aldrei“ var svarið. Gimi á tvö ung börn á skólaaldri, hvorugt þeirra gengur þó í skóla, hann segist að sjálfsögðu vilja að börnin fái menntun en þetta sé nú svona. Ein tengdadóttir bróður hans er 16 ára og á eitt barn, hún hefur ekki verið í skóla í mörg ár. Gimi sagði að ef unglingsstúlka væri í skóla heyrði hún talað um kynlíf og fjölskyldan væri jafnframt viss um að hún ætti kærasta í skólanum, slíkt gengi ekki. Þegar hann var minntur á skólaskylduna sagði hann; „Við sígaunar höfum okkar siði og venjur og Danir verða bara að virða það.“ Hann lagði líka mikla áherslu á gildi fjölskyldunnar sem stæði saman í blíðu og stríðu, „sígaunar eru friðsamir“ sagði hann. Sleppti því hins vegar alveg að minnast á að hann barði fyrrverandi konu sína til óbóta og keyrði síðar, eftir að þau voru skilin, á hana þar sem hún var á gangi og stórslasaði hana.
Hægt er að horfa á þættina í heild sinni hér að neðan:
Fyrri hluti:
https://www.youtube.com/watch?v=8Al8bwpi6gc
Seinni hluti:
https://www.youtube.com/watch?v=BPuQZGXbyyY
Að gefnu tilefni: Talað er um sígauna en ekki Rómafólk í þessari grein. Það er gert vegna þess að í viðtölum við meðlimi fjölskyldunnar í Danmörku tala þeir um sjálfa sig sem sígauna.