„Við erum forviða á þessari niðurstöðu, þessi ákvörðun er einsdæmi í Evrópu og okkur algjörlega óskiljanleg. Ekkert sambærilegt félag og Já í Evrópu ber kvaðir eins og þær sem íslenska Samkeppniseftirlitið hefur nú lagt á Já. Samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins áttum við að kaupa gögn á 100% verði af símafyrirtækjunum en selja þau aftur á 3%. Það er öllum fyrirtækjum í lófa lagt að semja beint við símafyrirtækin líkt og aðilar hafa þegar gert – en hver gengur til slíkra samninga þegar þeim er gert kleift að kaupa gögnin á undirverði af okkur?“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, í tilkynningu, vegna þeirrar ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins að sekta Já um 50 milljónir vegna meintra brota á samkeppnislögum, sem greint var frá fyrr í dag.
Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gengur þvert á fyrri niðurstöðu Úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, segir í tilkynningu frá Já, en nefndin tók undir sjónarmið Já um að það sé fjarskiptafyrirtækjanna sem úthluta símanúmerum að veita heildsöluaðgang að slíkum gögnum. „Tvær eftirlitsstofnanir hafa þannig komist að sitthvorri niðurstöðunni í málinu,“ segir í tilkynningu frá Já.
Já hefur boðið gögnin til endursölu samkvæmt verðskrá sem kynnt var Samkeppnisstofnun árið 1998 án athugasemda. Í tilkynningu frá fyrirtækinu er það sagt vekja furðu að sama stofnun komist nú að annarri niðurstöðu. „Við höfnum því alfarið að Já hafi misbeitt meintri markaðsráðandi stöðu sinni á þessum markaði. Við höfum aldrei neitað neinum um aðgang að gagnagrunni okkar og verðskráin miðast við raunkostnað. Við munum að sjálfsögðu áfrýja málinu til úrskurðarnefndar samkeppnismála og dómstóla ef þess þarf.“ segir Sigríður Margrét enn fremur.