Sigurður G: Aðför sem nær ekki nokkurri átt

siggiggudjonsson.jpg
Auglýsing

Sig­urður G. Guð­jóns­son hrl., lög­maður Sig­ur­jóns Þ. Árna­son­ar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans, segir nið­ur­stöð­una frá því í morg­un, þar sem Sig­ur­jón var sýkn­aður af ákæru um umboðs­svik, ekki hafa komið á óvart. Hann segir „að­för“ ákæru­valds­ins á hendur honum ekki ná nokk­urri átt. „Ég hef alltaf verið full­viss um að Sig­ur­jón væri sak­laus. Hann hefur svarað öllum spurn­ingum sér­staks sak­sókn­ara, vísað á gögn og skýrt það sem kallað hefur verið eft­ir. Á hann hefur ein­fald­lega ekki verið hlust­að, en það er jákvætt að dóm­stólar skuli gera það. Það hefur aldrei verið neinn grund­völlur fyrir refsi­máli á hendur Sig­ur­jón­i,“ segir Sig­urð­ur.

Eins og greint var frá í morgun voru Sig­ur­jón, og Sig­ríður Elín Sig­fús­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­. Þau voru ákærð fyr­ir­ ­um­boðs­svik upp á 13,6 millj­arða króna. Ætluð brot þeirra, sem þau hafa nú verið sýknuð af, vörð­uðu allt að sex ára fang­elsi.

Sig­ur­jón og Sig­ríður Elín hafa nú tví­vegis verið sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur, fyrst í IMON-­mál­inu svo­kall­aða, og síðan núna í meintu umboðs­svika­máli. Af þeim þremur málum sem Sig­ur­jón hefur verið ákærður vegna liggja nú fyrir tveir sýknu­dómar í hér­aði, og hefur það þriðja, þar sem Sig­ur­jón er ákærður ásamt fleirum fyrir mark­aðs­mis­notk­un, verið dóm­tek­ið.

Auglýsing

Sig­urður segir að málin megi rekja til kæru frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME). „Málið má rekja til kæru frá FME í tíð Gunn­ars And­er­sen sem for­stjóra. Sig­ur­jón hefur marg­farið yfir málin í yfir­heyrslum og gefið skýr­ingar á því sem spurt er út í, þar á meðal kaup­rétt­ar­kerf­inu sem sett var upp í bank­anum áður en Sig­ur­jón hóf þar störf, en þá var Gunnar And­er­sen þar sem starfs­maður og kom að upp­setn­ingu á kaup­rétt­ar­kerf­inu. Nú er búið að sýkna í þessum tveimur málum í hér­aði, og öðru þeirra hefur verið skotið til Hæsta­rétt­ar. Nú er bara að takast á við fram­haldið í þessum mál­um, en þessi nið­ur­staða hlýtur að valda Jóhönnu (Sig­urð­ar­dótt­ur) og Stein­grími (J. Sig­fús­syni) miklum áhyggj­um. Það er búið að hund­elta Sig­ur­jón árum sam­an, og hann úttal­aður sem glæpa­mað­ur, þrátt fyrir að ekki sé neinn fótur fyrir slíkum ásök­un­um. En sýknu­dómar í málum gegn honum koma mér ekk­ert á óvart og eru algjör­lega í takt við mína sann­fær­ingu. Það verður svo að koma í ljós hvað Hæsti­réttur ger­ir,“ sagði Sig­urð­ur.

Ekki liggur enn fyrir hvort sér­stakur sak­sókn­ari hyggst áfrýja mál­inu til Hæsta­rétt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None