Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hefur birt stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann biðst innilega afsökunar á orðum sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands, í samkvæmi í tengslum við Búnaðarþing síðasta fimmtudagskvöld. Í umfjöllun á vef DV í gær sagði að Sigurður Ingi hefði vísað til Vigdísar sem „hinnar svörtu“.
Í stöðuuppfærslunni sem Sigurður Ingi birti í dag segir að hann sé alinn upp við það og það sé hans lífsskoðun að allir séu jafnir. „Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðrum. Það þykir mér miður. Í kvöldverðarboði Framsóknar fyrir fulltrúa á Búnaðarþingi síðastliðið fimmtudagskvöld, lét ég óviðurkvæmileg orð falla í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Á þeim orðum biðst ég innilegrar afsökunar. Í lífinu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lærdómur bitni á tilfinningum annarra.“
Ég er alinn upp við það og það er mín lífsskoðun að allir séu jafnir. Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við...
Posted by Sigurður Ingi Jóhannsson on Monday, April 4, 2022
Vigdís birti stöðuuppfærslu fyrr í dag þar sem hún sagði að „afar særandi ummæli“ hafi verið látin falla og að hún hafi heyrt þau, sem og fleira starfsfólk Bændasamtakanna.
Ingveldur Sæmundsdóttir aðstoðarmaður Sigurðar Inga vísaði því þó á bug í samtali við DV að ráðherra hefði notað slíkt orðalag – hann hefði þess í stað sagt að hann vildi ekki halda halda á Sjálfstæðismanni eftir að sú hugmynd kom upp að hann og fleiri héldu á Vigdísi í einskonar „planka“ fyrir myndatöku.
Neitar að bera ábyrgð á orðum ráðherra í sinn garð
Hún segir að hún hafi aldrei talið að hún þyrfti að setjast niður og skrifa yfirlýsingu af þessu tagi. „Ég hef aldrei látið húðlit, kynþátt, kynferði eða annað skilgreina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töluðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerðist,“ skrifar hún.
„Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráðherrann viðhafði í minn garð. Duldir fordómar eru gríðarlegt samfélagsmein og grassera á öllum stigum samfélagsins. Þeir smætta verk einstaklinga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ skrifar Vigdís.
Hún bætir því við að hún hyggist ekki tjá sig frekar um þetta, heldur kjósa að „horfa fram á veginn að vinna úr þeim góðu niðurstöðum sem fram komu á Búnaðarþingi.“
Yfirlýsingu Vigdísar má lesa hér að neðan:
Aldrei hélt ég að ég þyrfti að setjast niður og skrifa svona yfirlýsingu. Ég hef aldrei látið húðlit, kynþátt, kynferði...
Posted by Vigdís Häsler on Monday, April 4, 2022