Sigurður Ingi biðst afsökunar á því að látið „óviðurkvæmileg orð“ falla

Formaður Framsóknarflokksins er sagður hafa vísað til framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands sem „hinnar svörtu“. Hann segir að honum hafi orðið á og biðst afsökunar á þeim orðum sem hann lét falla.

Sigurður Ingi
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, hefur birt stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem hann biðst inni­lega afsök­unar á orðum sem hann lét falla í garð Vig­­dísar Häsler, fram­­kvæmda­­stjóra Bænda­­sam­­taka Íslands, í sam­kvæmi í tengslum við Bún­að­ar­þing síð­asta fimmtu­dags­kvöld. Í um­fjöllun á vef DV í gær sagði að Sig­­urður Ingi hefði vísað til Vig­­dísar sem „hinnar svört­u“.

Í stöðu­upp­færsl­unni sem Sig­urður Ingi birti í dag segir að hann sé alinn upp við það og það sé hans lífs­skoðun að allir séu jafn­ir. „Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðr­um. Það þykir mér mið­ur. Í kvöld­verð­ar­boði  Fram­sóknar fyrir full­trúa á Bún­að­ar­þingi síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­un­ar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­dómur bitni á til­finn­ingum ann­arra.“

Ég er alinn upp við það og það er mín lífs­skoðun að allir séu jafn­ir. Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við...

Posted by Sig­urður Ingi Jóhanns­son on Monday, April 4, 2022

Vig­dís birti stöðu­upp­færslu fyrr í dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hafi verið látin falla og að hún hafi heyrt þau, sem og fleira starfs­­fólk Bænda­­sam­tak­anna.

Ing­veldur Sæmunds­dóttir aðstoð­­ar­­maður Sig­­urðar Inga vís­aði því þó á bug í sam­tali við DV að ráð­herra hefði notað slíkt orða­lag – hann hefði þess í stað sagt að hann vildi ekki halda halda á Sjálf­­stæð­is­­manni eftir að sú hug­­mynd kom upp að hann og fleiri héldu á Vig­­dísi í eins­­konar „planka“ fyrir mynda­­töku.

Auglýsing
Vig­dís sjálf segir þetta hins vegar rangt. „Að­­stoð­­ar­­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­­ari mynda­­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það.“

Neitar að bera ábyrgð á orðum ráð­herra í sinn garð

Hún segir að hún hafi aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­ast niður og skrifa yfir­­lýs­ingu af þessu tagi. „Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­­ferði eða annað skil­­greina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töl­uðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerð­is­t,“ skrifar hún.

„Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­dómar eru gríð­­ar­­legt sam­­fé­lags­­mein og grass­era á öllum stigum sam­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ skrifar Vig­­dís.

Hún bætir því við að hún hygg­ist ekki tjá sig frekar um þetta, heldur kjósa að „horfa fram á veg­inn að vinna úr þeim góðu nið­­ur­­stöðum sem fram komu á Bún­­að­­ar­­þing­i.“

Yfir­­lýs­ingu Vig­­dísar má lesa hér að neð­an:

Aldrei hélt ég að ég þyrfti að setj­ast niður og skrifa svona yfir­lýs­ingu. Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­ferð­i...

Posted by Vig­dís Häsler on Monday, April 4, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent