Sigurður Ingi: Ekki unnt að fallast á fyrirhugaða byggð í Skerjafirði að óbreyttu

Innviðaráðherra segir að hann muni ekki fallast á að farið verði í uppbyggingu á næstum sjö hundruð íbúða hverfi í Nýja-Skerjafirði án þess að það verði tryggð að hún hafi ekki neikvæð áhrif á rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, segir að ekki sé unnt að fall­ast á áætl­anir Reykja­vík­ur­borgar um fyr­ir­hug­aða byggð í Skerja­firði að óbreyttu. Óásætt­an­legt sé að farið sé í slíkar fram­kvæmdir án þess að full­kannað sé hvort og þá með hvaða hætti verði tryggt að þær hafi ekki nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. „Ráð­herra mun því hvorki geta fall­ist á að farið verði í umræddar fram­kvæmdir í Skerja­firði né aðrar slíkar fram­kvæmdir í næsta nágrenni við flug­völl­inn nema sýnt hafi verið með óyggj­andi hætti fram á að flug­ör­yggi og rekstr­ar­ör­yggi sé ekki stefnt í hætt­u.“

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Sig­urðar Inga við fyr­ir­spurn Þor­gríms Sig­munds­sonar, vara­þing­manns Mið­flokks­ins, um hvort ráð­herr­ann ætli sér að koma í veg fyrir „byggð í Nýja-Skerja­firði eins og þarf til að verja Reykja­vík­ur­flug­völl?“

Verð­andi borg­ar­stjóri Fram­sóknar von­ast eftir hverf­inu

Í svari sínu ítrekar Sig­urður Ingi því fyrri afstöðu ráðu­neyt­is­ins, sem var gerð opin­ber í bréfi til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur í júní þar sem sagði að fram­kvæmdir við byggð­ina dragi veru­lega úr rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vall­ar.

Auglýsing
Krafðist hann þess að fram­kvæmdum við upp­bygg­ingu hverf­is­ins, þar sem 690 íbúðir eiga að rísa, yrði frestað. Í því bréfi kom einnig fram að ráðu­neytið hefði skipað starfs­hóp sér­fræð­ingar sem skila eigi nið­ur­stöðum 1. októ­ber næst­kom­and­i. 

Í frétt RÚV um bréfið, sem birt var 24. júní, var rætt við Einar Þor­steins­son, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins  í Reykja­vík og sam­flokks­mann Sig­urðar Inga, sem situr nú í meiri­hluta­stjórn í Reykja­vík.

Einar gegndi þá hlut­verki stað­geng­ils borg­ar­stjóra og verður auk þess borg­ar­stjóri frá og með byrjun árs 2024. Í frétt­inni sagð­ist Einar von­ast til þess að fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu hverf­is­ins yrðu ekki blásnar af. „Ég vona það verði hægt að byggja þarna fal­legt hverfi, sem þjónar þessum hópum sem eru í sárri neyð eftir hús­næði og um leið að tryggja rekstr­ar­ör­yggi flug­vall­ar­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent