Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans, var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti vegna Ímon-málsins svokallaða. Elín Sigfúsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, var dæmd í 18 mánaða fangelsi. Steinþór Gunnarsson, fyrrum forstöðumaður verðbréfamiðlunar bankans, var dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi.
Hæstiréttiréttur snéri þar með við dómi héraðsdóms yfir Sigurjóni og Elínu, sem voru bæði sýknuð þar. Steinþór hlaut níu mánaða dóm í héraði en hluti hans var þá skilorðsbundinn. Sá dómur var kveðinn upp 5. júní 2014. Í dómi Hæstaréttar segir m.a.: "Brotin [...] beindust í senn að öllum almenningi og fjármálamarkaðinum hér á landi og verður tjónið, sem af þeim hlaust, ekki metið til fjár".
Imon-málið snýst um sölu Landsbankans á eigin bréfum til tveggja eignarhaldsfélaga í lok september og byrjun október árið 2008. Félögin tvö voru Imon ehf. og Azalea Resources Ltd. Landsbankinn fjármagnaði kaupin að fullu og taldi saksóknari viðskiptin vera markaðsmisnotkun og umboðssvik. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Sigurjón sé fundinn sekur um að hafa framið umboðssvik og markaðsmisnotkun. Elín var fundin sek um umboðssvik og hlutdeild í markaðsnisnotkun og Steinþór var sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun.
Fleiri mál gegn Landsbankafólki
Ímon-málið er ekki eina málið gegn Sigurjóni og Elínu sem nú er til meðferðar í dómskerfinu.
Í október 2014 voru þau sýknuð í héraðsdómi vegna ákæru fyrir umboðssvik upp á 13,6 milljarða króna. Þeim sýknudómi hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Í nóvember í fyrra var Sigurjón dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir markaðsmisnotkun í héraðsdómi, þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir. Ívar Guðjónsson, fyrrum forstöðumaður eigin fjárfestinga Landsbankans, og Júlíus S. Heiðarsson, sem var sérfræðingur í sömu deild, voru dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir, í sama máli.Sindri Sveinsson, sem starfaði við eigin fjárfestingar hjá Landsbankanum, var þar sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Mennirnir fjórir voru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun á tímabilinu 1. nóvember 2007 til 3. október 2008. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa handstýrt verðmyndun hlutabréfa í Landsbankanum og með því blekkt „fjárfesta, kröfuhafa, stjórnvöld og samfélagið í heild.“
Þetta mál bíður meðferðar fyrir Hæstarétti.Umfang þess er mun meira en Ímon-málsins, sem dæmt var í í dag.