„Sjálfstæðisflokkurinn kominn langt frá ábyrgum og skynsamlegum ríkisrekstri“

Þingmaður Viðreisnar spyr hvort þörf sé á öllum þeim 248 nýjum nefndum sem ríkisstjórnin stofnaði á síðasta kjörtímabili. Hún gagnrýnir enn fremur fjölgun ráðuneyta.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar segir að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi fallið á eigin prófi. Að baki fjölgun ráðu­neyta búi engin knýj­andi þörf – engin önnur þörf en sú að fjölga ráð­herrum svo valda­hlut­föllin milli stjórn­ar­flokk­anna hald­ist.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Benti hún á að Bjarni hefði þegar greint frá því að kostn­að­ur­inn við stofnun nýrra ráðu­neyta myndi hlaupa á hund­ruðum millj­óna króna og að þennan kostnað ætti að setja í sam­hengi við fjár­lögin í heild og öll þau verk­efni sem ríkið sinn­ir.

Auglýsing

„Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra fellur þarna á eigin prófi. Hans verk­efni er að halda á veski skatt­greið­enda og fara skyn­sam­lega með fjár­muni almenn­ings. Að baki fjölgun ráðu­neyta býr auð­vitað engin knýj­andi þörf, engin önnur þörf en sú að fjölga ráð­herrum svo valda­hlut­föllin milli stjórn­ar­flokk­anna hald­ist.

Hund­ruð millj­óna króna-kap­all­inn er afleið­ing þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn, sam­þykktu að Vinstri græn héldu þremur ráð­herra­stólum þrátt fyrir mikið fylgis­tap og gjaldið fyrir það að lang­minnsti flokk­ur­inn fái samt að leiða rík­is­stjórn. Hérna þarf að segja hið aug­ljósa, sem er að fyrir þetta borga skatt­greið­end­ur. Almenn­ingur og fyr­ir­tækin í land­inu taka reikn­ing­inn og þessir fjár­munir fara ekki í önnur verk­efn­i,“ sagði Þor­björg.

Tölvu­póst­hólf þing­manna fyll­ast af bréfum frá fólki

Telur Þor­björg að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé kom­inn langt frá ábyrgum og skyn­sam­legum rík­is­rekstri.

„Annað dæmi er það hvernig ráðu­neytin blása út og að á síð­asta kjör­tíma­bili stofn­aði þessi rík­is­stjórn 248 nýjar nefndir til við­bótar við allar þær sem þegar voru starf­andi. Var knýj­andi þörf á þeim öll­um? Síðan eru dæmi um það þar sem þörfin er sann­ar­lega knýj­andi.

Tölvu­póst­hólf þing­manna eru að fyll­ast af bréfum frá fólki sem ekki sér fyrir sér að geta haldið jól. Rík­is­stjórnin virð­ist ekki ætla að veita öryrkjum sér­staka upp­bót fyrir jólin og bréfin end­ur­spegla sorg vegna þessa. Að sjá til þess að eng­inn líði sáran skort, það er verk­efnið sem rík­inu ber að sinna og það er sam­hengið sem fjár­mála­ráð­herra sjálfur lýsti eftir og það er dóm­ur­inn um for­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­inn­ar,“ sagði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent