Sjö frambjóðendur í fyrsta prófkjöri Viðreisnar

Framboðsfrestur í prófkjöri Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar rann út á hádegi í dag. Tvær Þórdísar vilja efsta sætið á lista og fjögur keppast um 3. sætið.

Viðreisn er með tvo borgarfulltrúa í dag.
Viðreisn er með tvo borgarfulltrúa í dag.
Auglýsing

Sjö manns bjóða fram krafta sína í próf­kjöri Við­reisnar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík, sem fram fer dag­ana 4.-5. mars. Í próf­kjör­inu, sem er það fyrsta í sögu Við­reisn­ar, verður kosið um fjögur efstu sætin á lista flokks­ins.

Tvær vilja fyrsta sætið á lista, þær Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir núver­andi odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins og Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dótt­ir. Pawel Bar­toszek borg­ar­full­trúi er einn um að gefa kost á sér í annað sæti á list­an­um, en fleiri eru um hit­una hvað þriðja sætið á lista varð­ar.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík fær mótframboð í efsta sæti listans frá nöfnu sinni Þórdísi Jónu Sigurðardóttur. Mynd: Bára Huld Beck.

Vara­borg­ar­full­trú­arnir Dilja Ámunda­dóttir Zoega og Geir Finns­son sækj­ast bæði eftir þriðja sæt­inu á lista og þau Erlingur Sig­valda­son og Anna Kristín Jens­dóttir óska eftir stuðn­ingi í 3.-4. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins.

Allir félags­menn Við­reisnar 16 ára og eldri, sem búsettir eru í Reykja­vík og hafa verið félags­menn í a.m.k. þrjá daga fyrir próf­kjör hafa kosn­inga­rétt, sem þýðir að þeir sem eru skráðir í flokk­inn fyrir mið­nætti 1. mars geta kosið í próf­kjör­inu.

Eini meiri­hluta­flokk­ur­inn sem mæld­ist undir kjör­fylgi í nýj­ustu könnun

Við­reisn bauð fyrst fram til sveit­ar­stjórna árið 2018 og fékk þá 8,2 pró­sent atkvæða í Reykja­vík­ur­borg og tvo borg­ar­full­trúa kjörna. Í kjöl­farið mynd­aði flokk­ur­inn meiri­hluta ásamt Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri græn­um.

Auglýsing

Sam­kvæmt nýj­ustu könn­un­inni um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Mask­ína fram­kvæmdi í lok jan­úar og byrjun febr­ú­ar, mæld­ist Við­reisn ögn undir kjör­fylgi sínu og var eini flokk­ur­inn núver­andi meiri­hluta sem það gerði.

Flokk­ur­inn mæld­ist nánar til tekið með 5,9 pró­senta fylgi í könnun Mask­ínu, sem myndi þýða að hann fengi ein­ungis einn borg­ar­full­trúa kjör­inn.

Fram­bjóð­endur Við­reisnar í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík

  • Anna Kristín Jens­dóttir
  • Diljá Ámunda­dóttir Zoega
  • Erlingur Sig­valda­son
  • Geir Finns­son
  • Pawel Bar­toszek
  • Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dóttir
  • Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent