Sjóður eins ríkasta manns heims búinn að selja allar kröfur á Glitni

john-paulson.jpg
Auglýsing

Sjóður banda­rískja fjár­fest­is­ins John Paul­son, Paul­son Credit Oportunities Master, seldi allar kröfur sínar á slitabú Glitnis í ágúst síð­ast­liðn­um. Hann var í hópi stærstu kröfu­hafa Glitnis og átti kröfur upp á 53 millj­arða króna í vor. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Kjarn­inn hefur áður greint frá því að sjóð­ur­inn hafi fyrst eign­ast kröfur á Glitni í mars 2013. Í maí sama ár var umfang krafn­anna orðið tæpir 15 millj­arðar króna og í apríl 2014 var það orðið um 53 millj­arðar króna.

Í nýrri kröfu­hafa­skrá Glitnis frá 20. nóv­em­ber, sem Morg­un­blaðið hefur undir hönd­um, er sjóð­inn hins vegar hvergi að finna. Sjóður Johns Paul­sons hefur því selt sig út aðeins 18 mán­uðum eftir að hann keypti sig inn.

Auglýsing

Hagn­að­ist mikið á stöðu­töku fyrir hrun



Sá sem stofn­aði sjóð­inn og stjórnar honum er John Paul­son. Um hann hafa verið skrif­aðar bæk­ur, á meðal þeirra „The big­gest trade ever“, sem fjall­aði um stöðu­töku hans gegn hús­næð­is­bólunni í Banda­ríkj­unum sem gerði hann óheyri­lega rík­an. Einn fimm aðal­sjóða hans, Paul­son Credit Opportunities Master, hóf að kaupa kröfur á Glitni af miklum móð vorið 2013.

Sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Paul­son var sjö­undi stærsti vog­un­ar­sjóður Banda­ríkj­anna í árs­lok 2012. Það e með um sex millj­arði dala, um 750 millj­arða króna, í stýr­ingu.  Paul­son er talin vera á meðal 100 rík­ustu manna heims í lok síð­asta árs.

Burlington áfram langstærstur



Stærsti ein­staki kröfu­hafi Glitnis er áfram Burlington Loan Mana­gement, sem er í eigu banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Dav­id­son Kempner. Sjóð­ur­inn, sem er stór kröfu­hafi margra ann­arra íslenskra slita­búa, og eig­andi ýmissa íslenskra fyr­ir­tækja, er stærsti ein­staki kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs. Sam­kvæmt Morg­un­blað­inu á Burlington sam­þykktar kröfur upp á 245 millj­arða króna að nan­fn­virði í bú Glitn­is. Það eru tæp­lega ell­efu pró­sent allra sam­þykktra krafna. Sjóð­ur­inn hefur bætt lít­il­lega við sig síðan í maí í fyrra, þegar hann átti kröfur upp á rúman 241 millj­arð króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None