Sjúkrahúsið á Akureyri segir 500 milljónir skorta inn í reksturinn

Í minnisblaði frá SAk til fjárlaganefndar segir að 500 milljónir vanti inn í grunnrekstur stofnunarinnar á næsta ári. Stjórnendur SAk segja það eiga að vera á hendi stjórnvalda að taka ákvarðanir um þjónustuminnkun.

Sjúkrahúsið á Akureyri er varasjúkrahús fyrir Landspítala. Framlög til sjúkrahússins nema 10 milljörðum á fjárlögum næsta árs, en stjórnendur segja 500 milljónir vanta til viðbótar inn í grunnreksturinn.
Sjúkrahúsið á Akureyri er varasjúkrahús fyrir Landspítala. Framlög til sjúkrahússins nema 10 milljörðum á fjárlögum næsta árs, en stjórnendur segja 500 milljónir vanta til viðbótar inn í grunnreksturinn.
Auglýsing

Sjúkra­hús­inu á Akur­eyri (SAk) vantar um 500 millj­ónir króna auka­lega inn í rekstr­ar­grunn stofn­un­ar­innar til þess að geta haldið áfram að veita sömu þjón­ustu og veitt er í dag. Til við­bótar við það er komin mikil við­halds­þörf á hús­næði stofn­un­ar­inn­ar, sökum þess að síð­ustu ár hefur verið dregið úr og frestað meiri­háttar við­haldi til að vinna á móti halla­rekstri sjúkra­húss­ins.

Í minn­is­blaði frá for­stjóra SAk til fjár­laga­nefndar Alþingis segir að „mjög óskyn­sam­legt“ væri að halda áfram að fresta við­haldi sjúkra­stofn­un­ar­innar og við­halds­skuld­inni lýst sem gríð­ar­legri.

Í skila­boðum sjúkra­húss­ins til fjár­laga­nefndar segir að slæm fjár­hags­staða SAk hafi áhrif á rekstur og mögu­leika til þró­unar starf­sem­inn­ar, auk þess sem mikið álag hafi verið á starfs­fólki og greini­leg hættu­merki séu hjá öllum fag­hópum sem bregð­ast þurfi við, en í því sam­hengi er átt við lang­þreytu, veik­indi og mann­eklu.

Leyf­is­gjöld til Microsoft tug­millj­ónum yfir fjár­veit­ingum

Fram kemur í minn­is­blað­inu að helstu ástæður rekstr­ar­vanda sjúkra­húss­ins séu þær að veik­indi starfs­fólks hafi auk­ist og kostn­aður vegna þessa séu um 151 milljón króna á verð­lagi árs­ins 2022. Þá hafi stöðu­gildum lækna­nema, sér­náms­grunn­lækna og sér­náms­lækna fjölgað um 10,1 frá 2015, sem til­komið sé vegna breyt­inga á fyr­ir­komu­lagi sér­náms­lækna. Kostn­að­ur­inn við þetta er sagður 219 millj­ónir króna.

Auglýsing

Að auki er nefnt að lyfja­kostn­að­ur, annar en við leyf­is­skyld lyf, hafi auk­ist um 30 millj­ónir króna umfram hækk­anir rekstr­ar­fram­laga frá árinu 2018 og kostn­aður SAk við sjúkra­flug hafi vaxið umtals­vert á síð­ustu árum, þannig að í það stefni að það kosti sjúkra­húsið 45 millj­ónir króna umfram fjár­veit­ing­ar.

Þá segir að kostn­aður SAk vegna leyf­is­gjalda fyrir tölvu­þjón­ust­una Microsoft 365 hafi auk­ist gíf­ur­lega frá árinu 2017, leyfis­kostn­aður sjúkra­húss­ins hafi verið 34 millj­ónir króna umfram fjár­veit­ingar í fyrra og stefni í að verða 67 millj­ónir króna á þessu ári. Til við­bótar hafi svo verið gerð 47 millj­óna króna aðhalds­krafa á stofn­un­ina í fjár­veit­ingum þessa ári.

Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2023 er áætlað að fram­lög úr rík­is­sjóði til rekstur SAk nemi rúmum 10 millj­örðum króna, en þar af eru 200 millj­ónir króna áætl­aðar til kaupa á tækjum og bún­aði.

Stjórn­völd eigi að taka ákvörðun um nið­ur­skurð þjón­ustu

Í minn­is­blað­inu frá SAk segir að þrátt fyrir þá rekstr­ar­erf­ið­leika sem stofn­unin hefur glímt við hafi engri þjón­ustu verið hætt á árinu, þar sem talin sé þörf á allri þeirri þjón­ustu sem í boði er. Þó er sagt frá því að skerð­ing hafi verið á starf­semi Krist­nesspít­ala auk þess sem gripið hafi verið til tíma­bund­innar lok­unar á dag- og göngu­deild geð­deild­ar. Í minn­is­blað­inu segir að greina þurfi áhrif þessa á legu­deild­ir, því lok­anir á þjón­ustu auki álag á öðrum starfsein­ingum þar sem þörfin fyrir þjón­ust­una hverfi ekki.

Í minn­is­blað­inu segir frá því að SAk ætli ekki að skera niður í klínískri þjón­ustu sinni nema ákvörðun verði tekin um að hætta með ein­hverja þjón­ustu­ein­ingu. „Hvaða þjón­ustu­ein­ing yrði lögð niður eða flutt til telja stjórn­endur SAk vera stefnu­mark­andi ákvörðun stjórn­valda,“ segir í minn­is­blaði SAk til fjár­laga­nefnd­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent