Sjúkrahúsþjónusta mun dýrari hérlendis en í Evrópusambandinu

Íslendingar þurfa að borga mun meira fyrir sjúkrahúsþjónustu en íbúar Evrópusambandslanda, jafnvel þótt tekið sé tillit til hærri kaupmáttar hérlendis. Hins vegar er hiti, rafmagn og hugbúnaður ódýrari hér.

Það er mun kostnaðarsamara að leggjast inn á sjúkrahús hérlendis heldur en í Evrópusambandinu.
Það er mun kostnaðarsamara að leggjast inn á sjúkrahús hérlendis heldur en í Evrópusambandinu.
Auglýsing

Heil­brigð­is­þjón­usta, og sér­stak­lega sjúkra­hús­þjón­usta, er mun dýr­ari hér­lendis en í öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins þegar tekið er til­lit til mis­mun­andi kaup­máttar á milli landa. Þetta kemur fram í nýupp­færðum tölum á vef Hag­stofu um alþjóð­legan verð­sam­an­burð.

Í töl­unum kemur fram sam­an­burður á verði ýmissar þjón­ustu á milli Evr­ópu­landa, þar sem verðið ýmsum vöru- og þjón­ustu­flokkum er borið saman við með­al­tal Evr­ópu­sam­bands­landa. Sam­kvæmt þeim er verð­lag hærra í flestum flokkum hér­lend­is, en Íslend­ingar verja tæp­lega helm­ingi hærra hlut­falli af tekjum sínum í neyslu­út­gjöld heldur en íbúar í aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Auglýsing

Mestur er mun­ur­inn á verð­lag­inu í sjúkra­hús­þjón­ustu, sem Íslend­ingar verja 2,5 sinnum meira en íbúar Evr­ópu­sam­bands­landa að með­al­tali, þegar tekið er til­lit til mis­mun­andi kaup­máttar á milli landa. Þetta er næst­hæsta verðið á þjón­ust­unni í öllum þeim 37 Evr­ópu­löndum sem Hag­stofan mæl­ir, en hún er ein­ungis dýr­ari í Sviss.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Líkt og sést á mynd hér að ofan er verðið á þjón­ust­unni fjórð­ungi hærra en í Nor­egi, helm­ingi hærra en í Sví­þjóð og 70 pró­sentum hærra en í Dan­mörku. Mun­ur­inn er svip­aður ef heild­ar­út­gjöld í heil­brigð­is­þjón­ustu eru skoð­uð, en í þeim flokki er Ísland dýr­ast allra Norð­ur­landa og næst­dýr­ast í Evr­ópu, á eftir Sviss.

Raf­magn, hiti og hug­bún­aður ódýr

Tvenns konar neyslu­vörur er aftur á móti ódýr­ari hér­lendis heldur en í Evr­ópu­sam­band­inu, en það er ann­ars vegar raf­magn og hiti og hins vegar hug­bún­að­ur. Verðið á raf­magni og hita var þriðj­ungi lægra hér­lendis heldur en að með­al­tali í Evr­ópu­sam­band­inu í fyrra, en þó ekki jafn­la­ágt og í Nor­egi, þar sem raf­magn var helm­ingi ódýr­ara en í aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins.

Sömu sögu er að segja um hug­bún­að, sem var rúmum 10 pró­sentum lægra hér­lendis en í öðrum Evr­ópu­sam­bands­lönd­um, en sam­kvæmt sam­an­burði Hag­stofu var hug­bún­aður hvergi ódýr­ari heldur en hér, þegar tekið er til­lit til kaup­mátt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent