Skattahækkanir vinstri stjórnarinnar ástæða hallalausra fjárlaga hægri stjórnarinnar

johanna1.jpg
Auglýsing

Halla­lausum fjár­lögum var náð að lang­mestu leyti með skatta­hækk­un­um. Skatta­hækk­anir í kjöl­far hruns­ins skila nú miklum tekjum vegna auk­inna umsvifa og skatt­byrði fyr­ir­tækja og heim­ila hefur auk­ist. Þetta segir í grein á vef Sam­taka atvinnu­lífs­ins, sem áætla að nýir fyr­ir­tækja­skattar frá árinu 2008 skili rík­is­sjóði 85 millj­örðum króna í við­bót­ar­tekjur á árinu 2016.

Skatta­breyt­ing­arnar sem vísað er til voru gerðar í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Í tíð hennar hækk­uðu skattar á fyr­ir­tæki úr 15 pró­sentum í 20 pró­sent. Skattar á ein­stak­linga hækk­uðu einnig.

Auglýsing


Stefnt er á afgang af rekstri rík­is­sjóðs í fjár­laga­frum­varpi 2016, þriðja árið í röð. Sam­tök atvinnu­lífs­ins segja afgang­inn svo lít­inn bæði á árunum 2015 og 2016 að það virð­ist sem meg­in­mark­miðið sé aðeins að skila halla­lausum fjár­lög­um.

Jákvæðar breyt­ingar en ekki dregið úr þenslu

Sam­tök atvinnu­lífs­ins segja boðað afnám tolla og skatta­lækk­anir á ein­stak­linga vera jákvæðar breyt­ingar og mik­il­vægt sé að fram­hald verði á slíkum aðgerð­um. Breyt­ing­arnar séu hins vegar þenslu­hvetj­andi og því nauð­syn­legt að draga úr útgjöldum á móti.



Rík­is­fjár­málin draga ekki úr þenslu. Útgjöld rík­is­sjóðs að frá­töldum fjár­magns­kostn­aði og öðrum útgjöldum sem óhjá­kvæmi­legt er að falli á rík­is­sjóð hafa auk­ist frá árinu 2012 og hafa nær aldrei verið hærra hlut­fall af lands­fram­leiðslu. Boð­uðum skatta­lækk­unum og nið­ur­fell­ingu tolla er því ekki mætt með minni útgjöld­um.“ Þenslu­á­hrif frum­varps­ins fyrir árið 2016 eru metin um 40 millj­arðar króna af SA.



Bent er á í grein­inni að af ríkjum Evr­ópu þá greiði íslenska ríkið hæsta hlut­fall lands­fram­leiðslu í vaxta­kostn­að. „Þrátt fyrir lít­inn afgang af rík­is­rekstr­inum er áætlað í fjár­laga­frum­varp­inu að hefja nið­ur­greiðslu skulda. Einnig er þar tekið fram að stefnt sé á frek­ari nið­ur­greiðslu skulda skap­ist til þess svig­rúm við afnám hafta.



Upp­sveiflur eru aldrei eilífar og nú þegar tekjur rík­is­sjóðs vaxa eins og raun ber vitni er nauð­syn­legt að búa í hag­inn. Fjár­mála­stefnu rík­is­sjóðs verður að haga þannig á kom­andi árum að næst þegar illa árar verði útgjöldin ekki í hæstu hæð­um, skatt­pró­sentur við þol­mörk og skulda­staðan slig­andi. Nú er tími aðgerða.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None