Skeljungur greiddi forstjóranum sínum sjö milljónir á mánuði í fyrra

Skeljungur hagnaðist um 6,9 milljarða króna á árinu 2021. Nánast allur hagnaðurinn er tilkominn vegna sölu á P/F Magn. Olíufélagið, sem verið hefur í rekstri í 93 ár, hefur verið breytt í SKEL fjárfestingafélag.

Árni Pétur Jónsson var forstjóri Skeljungs þangað til fyrr í þessum mánuði þegar hann sagði af sér vegna ásakana um ósæmilega hegðun fyrir 17 árum síðan.
Árni Pétur Jónsson var forstjóri Skeljungs þangað til fyrr í þessum mánuði þegar hann sagði af sér vegna ásakana um ósæmilega hegðun fyrir 17 árum síðan.
Auglýsing

Laun og hlunn­indi Árna Pét­urs Jóns­son­ar, þáver­andi for­stjóra Skelj­ungs, voru 72 millj­ónir króna á síð­asta ári, eða sex millj­ónir króna á mán­uði. Auk þess fékk hann 12 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð frá félag­inu, eða alls eina milljón króna á mán­uði. Sam­an­lögð laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur til Árna Pét­urs voru því sjö millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði í fyrra.

Árni Pétur tók við starfi for­stjóra Skelj­ungs árið 2019. Hann gegndi starf­inu því allt árið 2020. Á því ári voru laun og hlunn­indi hans 49 millj­ónir króna, eða um fjórar millj­ónir króna á mán­uði. Hann fékk auk þess 13 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð og því voru heild­ar­greiðslur félags­ins til hans tæp­lega 5,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Laun og hlunn­indi Árna Pét­urs hækk­uðu því um 47 pró­sent á síð­asta ári en mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð dróst saman um tæp­lega átta pró­sent.

Sagði upp fyrr í þessum mán­uði

Árni Pétur sagði starfi sínu lausu í byrjun þessa mán­að­ar. Í til­­kynn­ing­unni sem hann sendi frá sér sagði Árni Pétur að honum hafi borist tölvu­­póstur frá fyrrum sam­­starfs­­konu hans í öðru fyr­ir­tæki, þar sem hann var yfir­­­maður hennar fyrir um 17 árum síð­­­an. „Þar greinir hún frá því að í dag upp­­lifi hún sam­­skipti okkar á þessum tíma með þeim hætti að ég hafi gengið yfir ákveðin mörk.“ 

Auglýsing
Hann sagði að konan hafi ekki sakað hann um ofbeldi, áreiti eða ein­hvers konar brot gegn lög­­um, heldur hafi verið um að ræða valda­ó­­jafn­­vægi og ald­­ur­s­mun. „Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brot­­legur við lög þá átta ég mig á því að við­mið og við­horf hafi breyst í sam­­fé­lag­inu og er það vel,“ segir Árni Pétur í til­­kynn­ingu sinni. „Met ég stöð­una þannig að mál þetta kunni að valda fyr­ir­tæk­inu og sam­­starfs­­fólki óþæg­ind­­um. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem for­­stjóri hjá Skelj­ungi hf.“

Ólafur Þór Jóhann­es­son, sem starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs og sem aðstoð­ar­for­stjóri Skelj­ungs, tók við starf­inu af Árna Pétri.

Nær allur hagn­að­ur­inn vegna sölu á P/F Magn

Skelj­ungur hagn­að­ist um 6,9 millj­arða króna á síð­asta ári. Sá hagn­aður er nær allur til­kom­inn vegna sölu á fær­eyska dótt­ur­fé­lag­inu P/F Magn á árinu 2021, en bók­færð áhrif þeirrar sölu á tekjur Skelj­ungs í fyrra voru 6,7 millj­arðar króna. Hlut­hafar ætla að greiða sér út 350 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem birt var í gær kom fram að Skelj­ungur verði héðan í frá fjár­fest­inga­fé­lag og beri nafnið SKEL fjár­fest­inga­fé­lag. Þar með lýkur sögu olíu­fé­lags­ins Skelj­ungs á Íslandi, en hún hófst árið 1928. 

Streng­ur, eign­ar­halds­fé­lag sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son fer fyr­ir, á 50,1 pró­sent hlut í félag­inu og hefur því tögl og hagldir innan þess. SKEL byrjar til­veru sínu með 12 millj­arða króna í hand­bært fé, um 50 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall  og ein­ungis tvo millj­arða króna í vaxta­ber­andi skuld­um. Áhersla verður lögð „á þróun á nýjum tæki­færum með félögum í eigna­safni með lang­tíma verð­mæta­sköpun að leið­ar­ljósi.“

Stærstu eignir fjár­fest­inga­fé­lags­ins eru 100 pró­sent hlutur í Orkunni, Skelj­ungi IS og Gallon, 48,5 pró­sent hlutur í Sp/f Orku­fé­lagi í Fær­eyjum (sem keypti P/F Magn), 20 pró­sent hlutur í Kalda­lóni og 50 pró­sent hlutur í félag­inu Fast­eigna­þró­un.

Orkan, stærsta eign félags­ins, rekur 70 þjón­ustu­stöðvar með elds­neyti og átta versl­an­ir, þrjár mat­vöru­versl­anir undir hatti Extra og þrjár þæg­inda­versl­anir undir hatti 10/11. Þá á Orkan Löður sem rekur 15 þvotta­stöðv­ar, Lyfja­val og Lyf­sal­ann sem reka sex apó­tek, Brauð & Co, Gló, Sbarro og WEDO (Heim­kaup, Hóp­kaup, Bland).

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent