Skeljungur undirritar viljayfirlýsingu um sölu og dreifingu á rafeldsneyti

Tvö dótturfélög fjárfestingafélagsins SKEL ætla í samstarf við danskan sjóð um möguleg kaup og dreifingu á rafeldsneyti sem hann stefnir á að framleiða á Reyðarfirði.

skeljungur
Auglýsing

Elds­neyt­is­sal­inn Skelj­ungur og Gallon, sem rekur birgða­stöðvar fyrir elds­neyti á Íslandi, hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu við danska sjóð­inn CI Energy Transition Fund I um að skoða mögu­leika fyr­ir­tækj­anna tveggja á að kaupa raf­elds­neyti af sjóðnum og dreifa því og selja, meðal ann­ars til íslenskra not­enda. Bæði Skelj­ungur og Gallon eru að öllu leyti í eigu fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins SKEL, sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­mark­að. 

CI Energy Transition Fund I er nýr sjóður í eigu Copen­hagen Infrastruct­ure Partners (CIP) og er stærsti sjóður heims sem er til­eink­aður fjár­fest­ingum í verk­efnum tengdu grænu raf­elds­neyti. CIP stefnir á fram­leiðslu raf­elds­neytis í Orku­garði Aust­ur­lands á Reyð­ar­firði, en orku­garð­ur­inn er sam­starfs­vett­vangur um nýt­ingu grænna tæki­færa á Aust­ur­landi. Mark­mið hans er að stuðla að auk­inni verð­mæta­sköpun og byggja upp þekk­ingu á orku­skiptum á svæð­in­u. 

Um er að ræða fyrsta vilja­yf­ir­lýs­ingu þess­arar gerðar sem gerð hefur verið á Ísland­i. 

Auglýsing
Í til­kynn­ingu frá Skelj­ungi vegna þessa segir að mark­mið stjórn­valda um orku­skipti í sjáv­ar­út­vegi og skipa­flutn­ingum náist aðeins ef skipa­fé­lög og útgerðir geti skipt út jarð­efna­elds­neyti fyrir aðra og umhverf­is­vænni orku­gjafa. „CIP, Skelj­ungur og Gallon hafa trú á því að raf­elds­neyti sé leiðin til að hætta losun koltví­sýr­ings í sigl­ing­um. Til að það tak­ist þarf inn­viði, sem sumir hverjir eru til stað­ar, en aðra þarf að byggja frá grunn­i.“

Þórður Guð­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Skelj­ungs, segir á sama stað að fyr­ir­tækið sé stolt að ger­ast sam­starfs­að­ilar CIP í þeirri veg­ferð sem sjóð­ur­inn sé í. 

Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs. Mynd: Skeljungur

SKEL fjár­­­fest­inga­­fé­lag hét áður Skelj­ungur í 93 ár. Nafni og til­­­gangi félags­­ins var breytt í byrjun þess. Streng­­­ur, eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­mað­­­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son fer fyr­ir, á 50,1 pró­­­sent hlut í félag­inu og hefur því tögl og hagldir innan þess. SKEL átti 23,5 millj­arða króna í eigið fé í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Í fjár­festa­kynn­ingu SKEL vegna upp­gjörs þriðja árs­fjórð­ungs var sér­stak­lega fjallað um orku­skipti og inn­viði. Þar var gengið út frá því að það þyrfti að fram­leiða 16 TWst af raf­orku á ári til við­bótar við þær 20 TWst sem nú eru fram­leiddar hér­lendis til að ná fullum orku­skiptum og sagt að heildar umfang fjár­fest­inga, fjár­fest­ing­ar­þarfar í við­haldi og efl­ingu inn­viða vegna þessa væri  yfir 1.000 millj­arða króna. „Ljóst að hvert svo sem hlut­fallið af þess­ari fjár­fest­ingu verð­ur, þá er þörfin fyrir þjón­ustu­að­ila, orku og tæki umtals­verð og lík­leg til að aukast Orku­skipti í stærri tækj­um, svo sem vinnu­vélum og vöru­flutn­inga­bif­reið­um, verða lík­lega hrað­ari en raf­bíla­væð­ing­in.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent