Skipbrot fólksins í hjólhýsinu

14563792783_bbd331cd9e_z.jpg
Auglýsing

Það vakti athygli fólks á Norð­ur­landi - og raunar víðar einnig - þegar Ólafur H. Jóns­son, tals­maður nokk­urra land­eig­enda í Reykja­hlíð í gegnum félagið Land­eig­endur Reykja­hlíðar ehf., hóf gjald­töku í Náma­skarði í Mývatns­sveit. Ekki nóg með að það hafi komið öllum í opna skjöldu, þar með talið stjórn­völd­um, heldur virt­ist aug­ljóst að Ólafur og félagar voru í órétti að hafa fé af fólki.

Sýslu­mað­ur­inn vakn­aði strax, eftir að aðflinnslur bárust, og setti lög­bann á gjörn­ing­inn. Hér­aðs­dómur hefur fellt sinn dóm, og bíður málið nú Hæsta­rétt­ar, en lög­bannið var stað­fest í hér­aði.

Ekki var það til þess að auka traust á gjald­töku­fólk­inu - sem lagði hjól­hýs­inu við Náma­skarð til að auð­velda gjald­tök­una - að tals­mað­ur­inn átti erfitt með að fara með fjár­muni, og var úrskurð­aður gjald­þrota nokkrum vikum áður en hin ólög­mæta gjald­taka hófst.

Auglýsing

Þessi mis­heppn­aða og ólög­lega til­raun, í það minnsta sé mið tekið af nið­ur­stöðu sýslu­manns og hér­aðs­dóms, til gjald­töku á vin­sælum ferða­manna­stað, er lík­lega ástæðan fyrir því að stjórn­völd stíga var­lega til jarðar þegar að þessu kem­ur. Nátt­úrupass­anum var algjör­lega hafnað af Alþingi, og heyrir sú hug­mynd nú sög­unni til.

Stjórn­völd hafa lík­lega ákveðið að fara bara ósköp ein­falda leið, til að efla inn­viði ferða­þjón­ust­unnar um land allt. Ein­fald­lega úthluta fjár­munum til eyrna­merktra verk­efna víða um land­ið, sam­tals 850 millj­ón­um. Ekk­ert hjól­hýsi verður nálægt þeim stöð­um, þar sem fólk verður inn­an­dyra að reyna að hafa fé af fólki ólög­lega - í það minnsta sé mið tekið af nið­ur­stöðu Sýslu­manns og hér­aðs­dóms.

Upp­fært: Hæsti­réttur hefur ekki dæmt í mál­inu, eins og stóð í upp­haf­legu skrif­un­um, heldur hefur lög­bann sýslu­manns aðeins verið stað­fest í hér­aði.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None