Skorar á dómsmálaráðherra að tala skýrt og segja satt

Þingmaður Pírata segir það grafalvarlegt mál að dómsmálaráðherra taki undir orðræðu sem er til þess fallin að auka jaðarsetningu fólks sem þegar tilheyrir minnihlutahópi.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata.
Auglýsing

Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Pírata, segir ástæðu til að gera athuga­semdir við ýmis ummæli Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra í tengslum við hæl­is­leit­end­ur, jafnt í þing­sal sem og fjöl­miðl­um.

„Hat­urs­orð­ræða er ekki bara brot gegn þeim sem henni er beint að, hat­urs­orð­ræða er bein­línis hættu­leg sam­fé­lag­in­u.“ Þannig hóf þing­mað­ur­inn mál sitt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Óljósar full­yrð­ingar og óræð skila­boð inn á milli lína geta haft hug­hrif langt umfram til­efn­i,“ hélt hún áfram, og sagði stað­hæf­ingar dóms­mála­ráð­herra óljósar og senda þau skila­boð að fólk á flótta sem leitar hingað að skjóli frá stríði og öðrum hörm­ungum sé upp til hópa óheið­ar­legt, sé ekki hingað komið til að vinna og vera þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu, og sé jafn­vel hættu­legt.

Auglýsing

Fólk gengur út frá því að fólk í valda­stöðum segi satt

„Þegar fólk í valda­stöðum talar hefur það víð­tæk áhrif. Almenn­ingur gengur út frá því að ein­stak­lingar sem falin hefur verið sér­stök ábyrgð í þágu þjóð­ar­innar tali af þekk­ingu og heið­ar­leika. Fólk trúir þeim. Fólk í valda­stöðum fer með full­yrð­ingar í við­tölum án þess að blaða­menn fari í sér­staka rann­sókn­ar­vinnu til þess að kanna hvort full­yrð­ingin sé sönn eða ekki, því fólk gengur almennt út frá því að fólk í valda­stöðum segi satt,“ sagði Arn­dís Anna.

Jón mælti í gær fyrir frum­varpi til laga um landa­mæri. Í Morg­un­blað­inu í dag segir dóms­mála­ráð­herra meðal ann­ars að borið hafi á því að hæl­is­leit­endur hafi komið til Íslands með venes­ú­elsk vega­bréf „þrátt fyrir að vera frá öðrum lönd­um“. Í frétt­inni segir að vega­bréfa­við­skipti af þessu tagi séu alþjóð­legt vanda­mál.

Í frétt­inni ræðir Jón einnig um tengsl við skipu­lagða glæp­a­starf­semi þar sem haft er eftir ráð­herr­anum að mis­notkun á flótta­manna­kerf­inu sé mikil og að menn hafi áhyggjur af teng­ingu við skipu­lagða glæp­a­starf­semi. „Það er bara stað­reynd,“ er haft eftir dóms­mála­ráð­herra.

„Grafal­var­legt mál“

Arn­dís Anna skor­aði á dóms­mála­ráð­herra að sýna því valdi sem þeim hefur verið falið virð­ingu og byrja að tala skýrt og segja satt.

„Þetta snýst ekki bara um ein­hvern póli­tískan ágrein­ing á milli dóms­mála­ráð­herra og ann­arra sem eru honum ósam­mála um stefnu Íslands í flótta­manna­mál­um. Þetta er alvar­legt mál, upp á líf og dauða fjöl­skyldna sem er venju­legt fólk eins og við. Það að sjálfur dóms­mála­ráð­herra lands­ins taki und­ir, og jafn­vel stuðli að, orð­ræðu sem er til þess fallin að auka jað­ar­setn­ingu fólks sem þegar til­heyrir minni­hluta­hópi, er grafal­var­legt mál,“ sagði Arn­dís Anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent