Landsbankinn telur „ótímabært“ að fjalla um væntan heildarkostnað nýrra höfuðstöðva

Landsbankinn telur ekki tímabært að fjalla á ný um væntan heildarkostnað við byggingu stuðlabergsskreyttu höfuðstöðvanna sem bankinn er nú að byggja við Austurhöfn. Ríkið er búið að kaupa hluta hússins á um 6.000 milljónir króna.

Tölvuteikning af nýja Landsbankahúsinu við Austurhöfn, eins og fyrirséð er að það muni líta út.
Tölvuteikning af nýja Landsbankahúsinu við Austurhöfn, eins og fyrirséð er að það muni líta út.
Auglýsing

Eins og sagt var frá á dög­unum hefur íslenska ríkið ákveðið að festa kaup á svoköll­uðu Norð­ur­húsi nýrra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn í Reykja­vík, undir skrif­stofur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og aðstöðu fyrir Lista­safn Íslands undir sýn­ingar á sam­tíma­list.

Kaup­verðið nemur 6 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en það sam­svarar rúm­lega helm­ingi heild­ar­kostn­aðar við hús­ið, alla­vega miðað við þá kostn­að­ar­á­ætlun sem síð­ast var gefin út fyrir bygg­ingu stór­hýs­is­ins í heild.

Auglýsing

Lands­bank­inn gerði kostn­að­ar­á­ætlun vegna húss­ins undir árs­lok 2019, og var þá gert ráð fyrir að kostn­aður yrði 11,8 millj­arðar króna, án verð­bóta.

Kjarn­anum lang­aði að fá að heyra hvernig upp­færð kostn­að­ar­á­ætlun bank­ans vegna bygg­ingar húss­ins hljóm­aði, en rík­is­bank­inn hefur verið þög­ull um það í upp­gjörum sínum og árs­skýrslum hvort þess megi vænta að ein­hver við­bót­ar­kostn­aður bæt­ist við þá 11,8 millj­arða sem gert var ráð fyrir í áætlun 2019 og greint frá í árs­skýrslu bank­ans fyrir það ár, sem birt var árið 2020.

Á eftir að semja um til­tekin atriði sem gætu haft áhrif

Í svari sem blaða­manni barst frá Lands­bank­anum sagði að bank­inn teldi „ótíma­bært að fjalla um áætl­aðan heild­ar­kostnað þar sem enn á eftir að semja um til­tekin atriði sem geta haft áhrif til hækk­unar eða lækk­un­ar“.

Í svari bank­ans er hins vegar bent á að frá því að áætl­unin var gerð hefði bygg­ing­ar­vísi­tala hækkað um u.þ.b. 20 pró­sent og kostn­aður hefði fallið til sökum þess að bygg­ing húss­ins hefði tekið lengri tíma en áætlað var.

Upp­haf­lega hafi verið gert ráð fyrir því að bygg­ingu húss­ins yrði lokið um mitt ár 2022, en að nú væri miðað við að bank­inn flytti starf­semi höf­uð­stöðva sinn í húsið undir lok árs­ins. Bygg­ingu húss­ins í heild sinni á svo að ljúka árið 2023, en verk­lok við Norð­ur­hús­ið, þann hluta sem ríkið hefur nú fest kaup á, eru áætluð næsta vor, sam­kvæmt svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Kostn­aður upp­haf­lega met­inn 9 millj­arðar

Þegar banka­ráð Lands­bank­ans ákvað árið 2017 að láta byggja nýtt hús á lóð­inni við Aust­ur­höfn, sem bank­inn hafði keypt árið 2014, var gert ráð fyrir því að bygg­ing húss­ins að með­töldu lóð­ar­verð­inu yrði 9 millj­arð­ar. Helga Björk Eiríks­dóttir stjórn­ar­for­maður Lands­bank­ans greindi svo frá upp­færðri kostn­að­ar­á­ætlun bank­ans vegna verks­ins í ávarpi sínu í árs­skýrslu bank­ans fyrir árið 2019, þegar hún var birt í upp­hafi árs 2020.

„Þegar búið var að leggja mat á til­lögur sem bár­ust um hönnun húss­ins var ljóst að bygg­ingin yrði kostn­að­ar­sam­ari en upp­haf­lega var gert ráð fyr­ir. Við bætt­ist kostn­aður vegna ákvörð­unar um að húsið yrði umhverf­is­vottað sam­kvæmt BREEAM-um­hverf­is­staðl­in­um. Sam­kvæmt þeirri kostn­að­ar­á­ætlun sem banka­ráð hefur sam­þykkt er nú reiknað með að heild­ar­kostn­aður við bygg­ing­una verði 11,8 millj­arðar króna. Þrátt fyrir að kostn­aður verði því um 1,8 millj­örðum króna hærri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir er ljóst að flutn­ingur í húsið mun hafa í för með sér nauð­syn­lega hag­ræð­ing­u,“ sagði í ávarpi Helgu Bjark­ar.

Þá hafði hækkun á bygg­ing­ar­vísi­tölu frá því að ákvörðun um bygg­ingu húss­ins var tekin þegar aukið vænt­an­heild­ar­kostnað upp í 10 millj­arða króna. Lands­bank­inn hefur gert ráð fyrir því að flutn­ingur höf­uð­stöðv­anna í húsið spari um hálfan millj­arð króna á ári, en höf­uð­stöðvar bank­ans eru nú dreifðar um Kvos­ina.

Fyrirspurn Kjarnans til Landsbankans

Spurn­ing: Hverjar eru nýj­ustu tölur sem þið hafið um væntan heild­ar­kostnað við bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva bank­ans við Aust­ur­höfn?

Svar: Sam­kvæmt áætlun frá árs­lokum 2019 var gert ráð fyrir að kostn­aður við bygg­ingu húss­ins yrði 11,8 millj­arðar króna, án verð­bóta, en frá því áætl­unin var gerð hefur bygg­ing­ar­vísi­tala hækkað um u.þ.b. 20%. Þá hefur fallið til kostn­aður vegna þess að bygg­ing húss­ins hefur tekið heldur lengri tíma en áætlað var, þ.e. upp­haf­lega var gert ráð fyrir að bygg­ingu þess yrði lokið um mitt ár 2022 en nú er miðað við að bank­inn flytji í húsið undir lok árs 2022. Bygg­ingu húss­ins lýkur árið 2023 (verk­lok við Norð­ur­hús eru áætluð næsta vor). Við teljum ótíma­bært að fjalla um áætl­aðan heild­ar­kostnað þar sem enn á eftir að semja um til­tekin atriði sem geta haft áhrif til hækk­unar eða lækk­un­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent