Skuldir íslenska ríkisins hafa lækkað um 309 milljarða frá 2012

fjarmala-1.jpg
Auglýsing

Skuldir íslenska rík­is­ins hafa lækkað um 309 millj­arða króna á núvirði frá árinu 2012. Þær munu minnka um 54 millj­arða krona eftir upp­kaup rík­is­sjóðs á eigin bréfum sem útgefin voru í banda­ríkja­döl­um. Þetta kemur fram í áætlun Lána­mála rík­is­ins sem sagt er frá í Morg­un­blað­inu.

Þar segir að eftir upp­greiðslu skulda­bréf­anna verði heild­ar­skuldir rík­is­ins 1.403 millj­arðar króna, eða 63,8 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, og lækki um 2,5 pró­sent. Sér­stak­lega er þó tekið fram að spá Seðla­banka Íslands um verga lands­fram­leiðslu árið 2015 virð­ist nokkuð ríf­leg og hún mun geta haft áhrif á lækkun skulda. 

Skuldir íslenska rík­is­ins voru 1.712 millj­arðar króna á núvirði í maí 2012. Þær hafa því lækkað um 309 millj­arða króna síðan þá, eða um 940 þús­und krónur á hvern Íslend­ing.

Auglýsing

Losun hafta og greiðsla stöð­ug­leika­skil­yrða minnkar skuldir



Til við­bótar er við­búið að skuldir rík­is­ins verði greiddar niður umtals­vert í kjöl­far þess að slitabú föllnu bank­anna greiða hin svoköll­uðu stöð­ug­leika­skil­yrði, eða að á þau verði lagður stöð­ug­leika­skattur nái þau ekki að mæta skil­yrð­unum fyrir ára­mót. Stærstu kröfu­hafar Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa allir samið við stjórn­völd um að mæta skil­yrð­unum en hversu hárri upp­hæð það muni skila í rík­is­sjóð liggur ekki fyr­ir. Í Morg­un­blað­inu þann 9. júní, dag­inn eftir að aðgerðir í afnámi hafta voru kynntar á fundi í Hörpu, kom fram í Morg­un­blað­inu að þær gætu skilað 698 millj­örðum króna.

Sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans, sem miða við þau skil­yrði sem liggja til grund­vallar samn­ingnum í dag og hafa verið birt á heima­síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, verður sú upp­hæð hins vegar á bil­inu 300 til 400 millj­arðar króna. Tak­ist slita­bú­unum ekki að mæta skil­yrð­unum fyrir árs­lok, meðal ann­ars með því að ljúka nauða­samn­ingum sín­um, mun 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur falla á allar eignir þeirra. Hann myndi skila mun hærri tölu í rík­is­sjóð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None