Skuldir sveitarfélaga stóraukast vegna nýrra útreikninga

Lífeyrisskuldbindingar nær allra sveitarfélaga jukust töluvert í fyrra, þar sem þær voru endurmetnar með tilliti til hærri meðalaldurs lífeyrisþega. Vegna þessarar breytingar aukast meðal annars skuldir Ísafjarðarbæjar um tæpan fimmtung.

Skuldir Ísafjarðar aukast um 17 prósent vegna nýrra reikninga á lífeyrisskuldbindingum.
Skuldir Ísafjarðar aukast um 17 prósent vegna nýrra reikninga á lífeyrisskuldbindingum.
Auglýsing

Skulda­staða flestra sveitaré­laga hér­lendis versn­aði til muna í fyrra, þar sem nýir útreikn­ingar um meiri líf­eyr­is­skuld­bind­ingar vegna hækk­andi með­al­ald­urs voru bók­færðar þá. Bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar hefur kallað eftir því að rík­is­valdið stígi inn til að létta þessum auknu álögum af sveit­ar­fé­lögum og Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga gagn­rýnir lít­inn tíma­frest sem sveit­ar­fé­lögin fengu til að bregð­ast við þessum útreikn­ing­um.

Gamlir útreikn­ingar en nýlega sam­þykktir

Umræddir útreikn­ingar voru fyrst gefnir út árið 2015 af Félagi íslenskra trygg­inga­stærð­fræð­inga, en þær miða við spár um þróun dán­ar­tíðni á næstu ára­tugum í stað dán­ar­tíðni und­an­far­innar ára.

Á þeim tíma ákvað fjár­mála­ráð­herra að stað­festa þær ekki og þurftu því sveit­ar­fé­lögin ekki að taka til­lit til þeirra í eigin líf­eyr­is­skuld­bind­ing­um. Hins vegar ákvað Reykja­vík­ur­borg að gera það á þeim tíma, en líf­eyr­is­skuld­bind­ingar sveit­ar­fé­lags­ins hækk­uðu því um 6,5 millj­arða króna.

Auglýsing

Fjár­mála­ráðu­neytið skipti svo um skoðun rétt fyrir síð­ustu jól, en þann 22. des­em­ber í fyrra var til­kynnt að nýju útreikn­ing­arnir voru sam­þykkt­ir, sem leiddi til þess að sveit­ar­fé­lögin þurftu að bók­færa þau í sínum árs­reikn­ing­um.

Hækk­unin mik­ill skellur

Heilt yfir er búist við því að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hækki um fimm pró­sent vegna þess­ara nýju útreikn­inga, en hækk­un­inni er þó ójafnt dreift á milli sveit­ar­fé­laga.

Frétta­mið­ill­inn Bæj­ar­ins besta greindi frá því fyrr í vik­unni að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar Ísa­fjarð­ar­bæjar hækk­uðu langt umfram áætl­anir árið 2021 vegna sam­þykktar á nýju útreikn­ing­un­um. Sam­kvæmt fjár­mála­stjóra bæj­ar­fé­lags­ins aukast skuldir þess um 390 millj­ónir króna vegna þeirra, úr 1,89 millj­örðum króna í 2,2 millj­arða króna. Þetta jafn­gildir 17 pró­senta hækk­un.

Birgir Gunn­ars­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar, segir hækk­un­ina vera mik­inn skell fyrir bæj­ar­fé­lagið í sam­tali við Kjarn­ann. Hann bætir þó við að skulda­aukn­ingin sé ekk­ert eins­dæmi hjá Ísa­fjarð­ar­bæ, önnur sveit­ar­fé­lög finni einnig fyrir henni. Í sam­tali við Bæj­ar­ins besta segir að hann að það væri ekki óeðli­legt að rík­is­valdið horfi til þess að létta þessum nýtil­komnu álögum af sveit­ar­fé­lög­um.

Kann að vera ágætt að taka skell­inn núna

Sig­urður Ármann Snæv­arr, sviðs­stjóri hag- og upp­lýs­inga­sviðs Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, greinir frá áhrifum nýrra líf­eyr­is­út­reikn­inga á fjár­hag sveit­ar­fé­lag­anna í minn­is­blaði sem hann sendi nýlega frá sér. Sam­kvæmt því gefst sveit­ar­fé­lögum ekki kostur á frestun á að taka til­lit til þess­ara útreikn­ing­ana, svo líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar hækka strax.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Sig­urður þó að hann telji ólík­legt að þessi aukna skuld­bind­ing muni leiða til skertrar þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lög­un­um, sem hafi heilt yfir skilað góðum rekstri á síð­asta ári. Einnig mætti segja að þetta sé að ein­hverju leyti heppi­leg tíma­setn­ing til að taka til­lit til þess­ara breyttu útreikn­inga núna, þar sem fjár­mála­reglum sveit­ar­fé­lag­anna hefur verið tíma­bundið vikið til hliðar til árs­ins 2026.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent