Söluvirði Húsasmiðjunnar fór allt í skatta og sekt

Husa.blar_himinn_03.jpg
Auglýsing

Gamla Húsa­smiðj­an, sem nú heitir Holta­vegur 10 ehf., hefur greitt sam­tals rúm­lega millj­arð króna vegna end­ur­á­lagn­ingu skatta og sam­keppn­is­sektar á und­an­förnum árum. Það þýðir að allar eignir félags­ins, að með­töldum þeim 800 millj­ónum króna sem feng­ust þegar Húsa­smiðjan var seld út úr félag­inu í árs­lok 2011, hafa farið í að greiða skatta og sekt­ir.

11,2 millj­örðum breytt í hlutafé

Húsa­smiðjan lenti í fangi kröfu­hafa sinna eftir banka­hrun. Langstærstur kröfu­hafanna var Lands­bank­inn. Í kjöl­farið var 11,2 millj­örðum króna af skuldum félags­ins breytt í nýtt hluta­fé. Eign­ar­halds­fé­lagið Vestia, þá í eigu Lands­bank­ans, eign­að­ist við þetta Húsa­smiðj­una sem fylgdi því svo inn í Fram­taks­sjóð­inn þegar félagið var lagt þangað inn gegn stórum eign­ar­hlut í sjóðn­um. Aðrir eig­endur Fram­taks­sjóðs­ins eru helstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins.

Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti í morgun að gamla Húsa­smiðjan hefði náð sátt við sam­keppn­is­yf­ir­völd sem fól í sér að hún við­ur­kenndi að hafa brotið sam­keppn­is­lög með umfangs­miklu ólög­mætu sam­ráði við Byko. Þar sem gamla Húsa­smiðjan við­ur­kenndi brot sitt og var til­búin að gera sátt tald­i ­Sam­keppn­is­eft­ir­litið rétt­læt­an­legt að leggja á félagið lægri stjórn­valds­sekt en ella. Það var því ákveðið að hún yrði 325 millj­ónir króna. Málið er afrakstur marg­hátt­aðra aðgerða, meðal ann­ars hús­leita og sím­hleranna, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið réðst í vorið 2011 vegna gruns um sam­keppn­is­brot hjá Húsa­smiðj­unni, Byko og Úlf­in­um.

Rúm­lega 700 millj­ónir króna vegna öfugs sam­runa

Þetta er ekki eina greiðslan sem gamla Húsa­smiðjan hefur þurft að greiða á und­an­förnum árum.  Í lok árs 2011 til­kynnti Rík­is­skatt­stjóri að Húsa­smiðjan skuld­aði rúm­lega 700 millj­ónir króna í skatta vegna svo­kall­aðs öfugs sam­runa sem fyrrum eig­endur hennar höfðu ráð­ist í. Í slíkum sam­runa felst að eign­ar­halds­fé­lag er sett á fót og það kaupir rekstr­ar­fé­lag með láns­fé. Eign­ar­halds­fé­lagið er síðan látið renna inn í rekstr­ar­fé­lagið og þar með er skuld­unum sem stofnað var til við kaupin komið inn í rekst­ur­inn sem þær voru not­aðar til að kaupa.

Til­kynn­ing um end­ur­á­lagn­ingu skatt­anna kom þegar langt var liðið á sölu­ferli Húsa­smiðj­unn­ar, en danska bygg­inga­vöru­versl­un­ar­keðjan Bygma var þá við að kaupa hana. Vegna skatta­vand­kvæð­anna var rekstur Húsa­smiðj­unnar settur yfir á nýja kenni­tölu, 2,5 millj­arðar króna af skuldum hennar líka og nýja kennitalan seld til Bygma fyrir 800 millj­ónir króna.

Eftir í gömlu Húsa­smiðj­unni voru skildar eignir sem voru metnar á 240 millj­ónir króna og kaup­verð­ið, 800 millj­ónir króna. Þetta var meðal ann­ars skilið eftir til að borga skatta­skuld­ina og mögu­lega sekt vegna sam­keppn­is­brota. Nú er ljóst að nán­ast allt þetta fé hið minnsta hefur farið í að greiða þennan kostn­að. Að teknu til­liti til þessa þá fékk fyrrum eig­andi Húsa­smiðj­unn­ar, Fram­taks­sjóður Íslands, ekk­ert fyrir fyr­ir­tækið þegar það var selt til Bygma í lok árs 2011.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None