Sólveig Anna ekki búin að ákveða hvort hún bjóði sig aftur fram til formennsku

Fráfarandi formaður Eflingar segist skilja bollaleggingar um hvort hún muni bjóða sig aftur fram til formennsku. Hún hafi fengið gríðarlegt magn skilaboða frá félagsfólki um að hún megi ekki fara frá baráttunni.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Auglýsing

Aðspurð hvort það komi til greina að hún bjóði sig aftur fram til for­mennsku í Efl­ingu seg­ir Sól­­veig Anna Jóns­dótt­ir, frá­far­andi for­maður félags­ins, að hú sé ekki búin að ákveða neitt.

Hún skilji þó að það séu bolla­­legg­ingar um hvort hún muni fara aftur fram í kom­andi for­­manns­­kosn­­ingum í Efl­ingu, sem þurfa að fara fram fyrir lok mars á næsta ári. „Ég hef fengið gríð­­ar­­legt magn af skila­­boðum frá alls­­konar fólki sem lýsir yfir upp­­­námi yfir því að þetta sé að ger­­ast og inn­­takið í þessum skila­­boðum frá félags­­­fólki Efl­ingar er ein­beitt ósk um að þetta megi ekki vera að ger­­ast. Það er ekki vegna þess að þeim finnst ég svo skemmti­­leg mann­eskja, heldur út af þeim árangri sem hefur náðst. Og vegna þess að það fólk sem ég hef unnið með, til dæmis í samn­inga­­nefnd­um, veit að ég gefst ekki upp. Ég segi alltaf satt og rétt frá og leita alltaf eftir lýð­ræð­is­­legu umboði fyrir því sem ég geri og hef reynt að vera alltaf til staðar fyrir félags­­­fólk. En ég lít svo á núna að ég geti ekki hugsað lengra fram í tím­ann en einn dag í einu núna. Ég er bara þar.“

Auglýsing
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali við Sól­veigu Önnu í Kjarn­anum sem birt var í gær. Þar steig tjáði hún sig í fyrsta sinn beint við fjöl­miðil eftir að hafa til­kynnt um afsögn sína fyrir viku síð­an.

Ekki búin að ákveða næstu skref

Þegar Sól­veig Anna greindi frá afsögn­inni, í stöð­u­­upp­­­færsl­u á Face­book, sagði hún að hún ætl­­aði aldrei að hætta í bar­áttu fyrir rétt­­læti fyrir þá sem til­­heyrum stétt verka- og lág­­launa­­fólks og þekkja lífið undir oki auð­­valds­­kerf­is­ins og lág­­launa­­stefn­unn­­ar.

Þegar hún er spurð hvað þetta þýði, og hvort hún sé að boða end­­ur­komu inn í stétt­­ar­­fé­lags­bar­áttu innan tíð­­ar, segir Sól­­veig Anna ekki vera komin þang­að. „Ég er að vinna mig í gegnum þetta áfall að vera hrakin burt úr emb­ætti for­­manns Efl­ingar sem ég tel mig hafa notið nær afdrátt­­ar­­lauss stuðn­­ings félags­­­manna til að gegna. Og ég ætla bara að fá að vera þar. Eina ákvörð­unin sem ég hef tekið er að klára loks­ins ævi­­sögu Rosu Lux­emburg, sem er mik­ill doðrant­­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent