Samkeppniseftirlitið hefur heimilað sameiningu Arion banka og AFLs sparisjóðs eftir að mat KPMG á lánasafni sjóðsins leiddi í ljós að staða hans er mun verri en fram kom í síðasta ársreikningi. AFL þarf á verulegu eiginfjárframlagi að halda til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall og því hefur Samkeppniseftirlitið nú endurskoðað fyrri ákvörðun og heimilað Arion banka að sameina AFL sparisjóð bankanum þar sem sparisjóðurinn er talinn fjármálafyrirtæki á fallanda fæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.
Því mun Arion banki stækka sem nemur eignum og skuldum AFLs.
Áttu að selja sjóðinn fyrir 1. ágúst
AFL sparisjóður hefur um nokkurra mánaða skeið ekki uppfyllt kröfu Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall og hefur Arion banki, sem langstærsti eigandi stofnfjárs með 99,3 prósent eignarhlut, unnið að málefnum sjóðsins í samstarfi við stjórn hans, Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið.
Í byrjun maí tilkynnti Samkeppniseftirlitið að sátt hefði náðst um að Arion banki þyrfti að selja AFL í skilgreindu ferli fyrir 1. ágúst 2015. Arion banki auglýsti sparisjóðinn til sölu í samræmi við framangreinda sátt, með auglýsingu í Viðskiptablaðinu. Þar var fjárfestum sem vilja taka þátt í útboðinu gefinn frestur til að skila upplýsingum.
DV greindi frá því á sama tíma að efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Íslands þegar kemur að hinni svonefndu leiðréttingu, Tryggvi Þór Herbertsson, hefði hug á því að kaupa AFL sparisjóð og væri í viðræðum við fjárfesta um þátttöku í þessum viðskiptum. Meðal þeirra sem nefndir eru sem mögulegir þátttakendur í viðskiptunum eru Kaupfélag Skagfirðinga og aðrir fjárfestar á Norðurlandi.
Staðan mun verri en ársreikningur sagði til um
Nú er ljóst að ekkert varð af þeim kaupum. Í tilkynningu frá Arion banka í dag kemur fram að AFL hafi fengið endurskoðendur KPMG til að meta lánasafn sjóðsins. "Sú vinna hefur leitt í ljós að staða sjóðsins er mun verri en fram kemur í síðasta ársreikningi og þarf sjóðurinn á verulegu eiginfjárframlagi að halda til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall. Úrlausn lagalegs ágreinings varðandi erlend lán AFLs myndi þar engu breyta um. Eftirlitsaðilar hafa verið upplýstir um stöðu sjóðsins. Að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið hefur Samkeppniseftirlitið nú endurskoðað fyrri ákvörðun og heimilað
Því hefur verið fallið frá ákvörðun um sölu AFLs og mun Arion banki þegar í stað ráðast í að sameina AFL sparisjóð bankanum. Þar til sameiningarferlinu er lokið mun Arion banki standa þétt að baki AFLi sparisjóði og veita honum þá fyrirgreiðslu sem nauðsynleg er. Þetta á bæði við um ný útlán sem og innlán viðskiptavina. AFL sparisjóður er staðsettur á Siglufirði og rekur auk þess útibú á Sauðárkróki. Markmið Arion banka er að reka öfluga fjármálaþjónustu á starfssvæði AFLs sparisjóðs og leggja þannig sitt af mörkum til uppbyggingar atvinnulífs og samfélags á svæðinu."