Heildverslunin Innnes ehf. gekk frá kaupum á öllu hlutafé Búrs ehf þann 12. nóvember sl. eftir að Samkeppniseftirlitið staðfesti kaupin enda var það mat eftirlitsins „að um óverulega samþjöppun sé að ræða á þeim mörkuðum sem fyrirtækin hafa starfað á“ segir í tilkynningu vegna kaupanna. Kaupverðið er ekki gefið upp, en með þessari sameiningu verður til stærsta matvöruheildsala landsins. Starfsmenn eru um 160 talsins og velta á ári um níu milljarðar króna.
Búr ehf hefur sérhæft sig á ávaxta- og grænmetismarkaði, innlendum sem og innfluttum vörum og hefur boðið uppá yfir 400 vöruliði í ferskum ávöxtum og grænmeti. Íslensk framleiðsla nemur um þriðjungi af sölu fyrirtækisins.
Við sameiningu fyrirtækjanna undir nafni Innnes verður til ein stærsta matvöruheildsala landsins með eitt fjölbreyttasta vöruúrval sem boðið er uppá á matvörumarkaði á Íslandi, segir í tilkynningu vegna kaupanna. „Tilgangur Innnes með kaupunum á Búr er að styðja við áframhaldandi vöxt á ferskvörumarkaði, stuðla að aukinni neyslu og um leið hvetja til hollara mataræðis landsmanna en með kaupunum. Markmið Innnes er að vera ávallt í farabroddi á sínu sviði hvað varðar vörurframboð, þjónustu til viðskiptavina sinna sinna og markaðssetingu vörumerkjanna,“ segir í tilkynningu vegna kaupanna.