Landsbankinn hefur fyrstur stóru bankanna þriggja brugðist við stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í síðustu viku og hækkað íbúðalánavexti sína. Seðlabankinn ákvað að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig upp í tvö prósent, en þeir vextir hafa nú hækkað um 1,25 prósentustig úr 0,75 prósentum í maí.
Viðbúið er að allir lánveitendur á íbúðalánamarkaði hækki óverðtryggða vexti sína vegna þessa og í dag tilkynnti Landsbankinn, stærsti banki landsins sem er að nær öllu leyti í eigu íslenska ríkisins, að breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum Landsbankans myndu hækka um 0,35 prósentustig. Þeir verða eftir breytinguna 4,20 prósent.
Vextir á verðtryggðum íbúðalánum, bæði breytilegir og fastir, verða óbreyttir.
Mun bíta í buddu margra landsmanna
Ljóst er að hækkun á vöxtum Landsbankans, og hinna stóru bankanna sem munu án efa fylgja í kjölfarið á næstu dögum, mun bíta í buddu landsmanna. Stóru bankarnir þrír hafa sópað til sín íbúðalánum frá síðasta vori samhliða því að húsnæðisverð hefur hækkað skarpt og upphæðir lána samhliða hækkað mikið. Hlutdeild banka í útistandandi íbúðalánum er nú um 70 prósent en var 55 prósent í byrjun árs 2020.
Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað hefur orðið eðlisbreyting á lántökum landsmanna við það að hlutfall óverðtryggðra lána af öllum íbúðalánum hefur hækkað gríðarlega. Það var 27,5 prósent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 prósent.
Hagnaður stóru bankanna þriggja: Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka var 60 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er meiri hagnaður en þeir hafa skilað innan heils árs frá 2015. Hagnaðurinn er drifinn áfram af vaxtatekjum, aðallega vegna íbúðalána, og hærri þóknanatekjum. Vaxtamunur stóru bankanna, sem er umtalsvert hærri en í samanburðarlöndum, hefur haldist tiltölulega stöðugur þrátt fyrir að bankaskattur hafi verið lækkaður umtalsvert.
Lífeyrissjóðirnir með bestu kjörin
Sem stendur bjóða lífeyrissjóðir upp á hagstæðustu óverðtryggðu íbúðalánin. Það gæti þó breyst í nánustu framtíð þegar næstu ákvarðanir um vaxtatöflu lána þeirra verða teknar.
Gildi, þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins, býður bestu óverðtryggðu kjörin sem stendur, 3,45 prósent vexti, og Brú lífeyrissjóður býður upp á 3,8 prósent vexti.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, ákvað í síðasta mánuði að stofna nýjan lánaflokk sjóðsfélagalána og lánar nú óverðtryggð lán til íbúðarkaupa með breytilegum vöxtum. Vextir hans eru nú 3,85 prósent.