Stefán Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr fjármálastjóri WOW air. Guðruún Valdimarsdóttir, sem gegnt hefur starfinu, mun starfa þar áfram og leiða stefnumótandi verkefni í vext félagsins. Hún mun einnig sinna áfram starfi fjármálastjóra Títan fjárfestingafélags, eiganda WOW air, og sitja í stjórnum tengdum Títan og WOW.
Stefán starfaði áður sem fjármálastjóri Advania. Tilkynnt var um ráðningu hans í það starf í október síðastliðnum. Stefán starfaði því í um tíu mánuði hjá Advania. Í tilkynningu frá WOW vegna ráðningu Stefáns segir að áður en hann réð sig til Advania þá hafi hann starfað sem Senior Director of Finance hjá CCP þar sem Stefán leiddi fjármáladeildir fyrirtækisins á heimsvísu og hafði yfirumsjón með samstæðuuppgjöri félagsins, sjóðstýringu, fjárfestatengslum og samskiptum við skatta-og eftirlitsstofnanir í þeim löndum sem félagið er með starfsemi. Stefán hóf störf hjá CCP árið 2010.
Í tilkynningu vegna ráðningar Á árunum 2010 – 2014 starfaði Stefán sem Senior Director of Finance hjá CCP og leiddi þar fjármáladeildir fyrirtækisins á heimsvísu. Frá 2003 -2010 starfaði Stefán sem Audit Manager hjá Eide Bailly í Phoenix, Arizona. Þar leiddi hann endurskoðunarteymi og endurskoðaði fyrirtæki í Arizona, Californiu, Colorado, New Mexico og Texas.
Stefán útskrifaðist með B.S. í Accountancy frá Arizona State University árið 2003 og varð löggiltur endurskoðandi, CPA (Certified Public Accountant) árið 2006 og Chartered Global Management Accountant (CGMA) árið 2014.
Eigandi Títan fjárfestingafélags og WOW air er Skúli Mogensen. Hann er einnig forstjóri félagsins.