Steingrímur J. hafnar því alfarið að lög hafi verið brotin þegar hlutir í bönkum voru framseldir

000-Par3102539.jpg
Auglýsing

Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrrum fjár­mála­ráð­herra, hafnar því alfarið að hafa brotið lög þegar hlutir rík­is­ins í Arion banka og Íslands­banka voru fram­seldir til slita­búa Kaup­þings og Glitnis síðla árs 2009. Í umsögn Jóns Gunn­ars Jóns­son­ar, for­stjóra Banka­sýslu rík­is­ins, um frum­varp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til laga um með­ferð og sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, sem skilað var inn í gær, segir að sam­kvæmt áliti Rík­is­end­ur­skoð­unar hefði þurft að afla heim­ildar í fjár­lögum fyrir árið 2010 fyrir henni. Það var ekki gert enda voru samn­ingar um fram­salið gerðir ann­ars vegar 3. sept­em­ber og hins vegar 15. októ­ber 2009. Fjár­lög voru hins vegar ekki sam­þykkt á Alþingi fyrr en 22. des­em­ber sama ár, eða rúmum tveimur mán­uðum eftir síð­ari samn­ing­inn. Frá þessu var greint í Morg­un­blað­inu í morg­un.

Stein­grímur segir að þegar lesið er beint það sem standi í umsögn­inni þá sé ekki verið að orða lög­brot. Það sé bara upp­sláttur Morg­un­blaðs­ins. „Það kemur líka fram í umsögn­inni að ekki hafi verið gengið frá fram­sali á eign­ar­hlut­unum fyrr en í des­em­ber­lok 2009 og í jan­úar 2010. Þá voru komin lög sem heim­ila þetta alveg sér­stak­lega. Það var afstaða ráðu­neyt­is­ins að þar sem ekki stæði til að ríkið væri ekki að fá borg­aðan út hlut­inn sem þeir settu inn í bank­ana þá þyrfti ekki sjálf­stæða laga­heim­ild fyrir því. Þá dyggðu heim­ildir neyð­ar­lag­anna. Ég fæ ekki betur séð en að í grein­ar­gerð frum­varps­ins sem fylgir frum­varpi Bjarna [Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra]um breyt­ingar á þessum lögum að ráðu­neytið sé enn þess­arar skoð­un­ar.“

Stein­grímur segir Rík­is­end­ur­skoðun ekki hafa talað beint um sölu heldur ráð­stöfun eigna í áliti sínu. „Það getur vel verið að þetta sé í ein­hverjum skiln­ingi fjár­reiðu­laga ráð­stöf­un, þegar samn­ing­arnir um bank­ana voru gerð­ir. Þá var skyn­sam­legt til að taka af allan vafa heim­ild fyrir því að þessir samn­ingar yrði full­gild­ir. Þeirra var aflað og þau lög voru sam­þykkt í des­em­ber 2009 áður en þessi eig­in­lega yfir­færsla átti sér stað. Deilan um það hvort það þurfti sér­staka laga­heim­ild eða ekki var aldrei útkljað vegna þess að það reyndi aldrei á það. Það var engin mót­staða gegn því í þing­inu að hafa þetta alveg öruggt með sér­lög­um. Það var því afgreitt frum­varp á Alþingi í des­em­ber 2009 þar sem nið­ur­staðan um samn­ing­anna um bank­ana var stað­fest.“

Auglýsing

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None