Stjórn RÚV skorar á Alþingi að lækka ekki útvarpsgjaldið

Kristján Loftsson
Auglýsing

„Stjórn Rík­is­út­varps­ins beinir þeirri ein­dregnu áskorun til Alþingis að það standi vörð um Rík­is­út­varpið með því að falla frá fyr­ir­hug­aðri lækkun á útvarps­gjald­i.“ Svo hljóðar nið­ur­lag áskor­un­ar ­stjórnar RÚV til Alþing­is, en áskor­unin hefur verið send fjöl­miðlum og þing­mönn­um.

Þar ­seg­ir að á und­an­förnum árum hafi fram­lög til RÚV verið ítrekað skorin nið­ur­, ­sam­hliða hafi verið hag­rætt mikið í starf­semi RÚV og dregið úr þjón­ustu. Sam­kvæmt sjálf­stæðri úttekt á fjár­málum félags­ins, sem stjórn RÚV og nýir stjórn­endur létu fram­kvæma síð­ast­liðið vor, sé félagið yfir­skuld­sett og stærstur hluti skuld­anna séu gamlar líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­ing­ar. Þá blasi við að tekjur dugi ekki fyrir þeirri þjón­ustu sem félagið veiti í sam­ræmi við útvarps­lög og þjón­ustu­samn­ing milli Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og Rík­is­út­varps­ins.

Óskert og óbreytt útvarps­gjald myndi standa undir rekstri RÚV



Stjórn RÚV mót­mælir harð­lega áformum stjórn­valda um að lækka útvarps­gjald­ið, og segir að óbreytt og óskert útvarps­gjald myndi standa undir rekstri félags­ins til fram­tíð­ar. Sam­hliða óskum RÚV um að fá útvarps­gjaldið óskert í sinn hlut, hefur stjórn RÚV og nýir stjórn­endur unnið að sölu útvarps­húss­ins við Efsta­leiti og lóðar félags­ins við hús­ið. Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri, hefur sagt í sam­tali við Kjarn­ann að von­ast sé til að eigna­salan, fáist ásætt­an­legt verð fyr­ir, muni leysa upp­safn­aðan skulda­vanda félags­ins.

Þá segir í áskorun stjórnar RÚV: „Nú stendur til að útvarps­gjaldið lækki um ára­mótin úr 19.400 kr niður í 17.800 kr og svo að útvarps­gjaldið lækki aftur að ári niður í 16.400 kr. Gangi þessar fyr­ir­ætl­anir eftir blasir við stór­felld breyt­ing á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins með stór­tæk­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerðum en áður hafa sést hjá félag­inu. Aug­ljóst má vera að sú þjón­usta sem Rík­is­út­varpið veitir tæki  stakka­skiptum við þessa breyt­ingu með sam­drætti á öllum svið­um. Þá er ljóst að áætl­anir um úrbætur á til­teknum þáttum í starf­sem­inni eru ófram­kvæm­an­legar en nýir stjórn­endur og stjórn hafa hug á að efla þjón­ustu við lands­byggð­ina, bjarga efni í Gull­kistu Rík­is­út­varps­ins og gera aðgengi­legt þjóð­inni, efla fram­boð á vönd­uðu barna­efni á íslensku, leggja aukna áherslu á inn­lenda fram­leiðslu og bæta dreifi­kerfið um land allt.“

Auglýsing

Þá und­ir­strikar stjórn RÚV mik­il­vægi félags­ins sem ein mik­il­væg­asta menn­ing­ar- og lýð­ræð­is­stofnun þjóð­ar­inn­ar. „Ef það er vilji Alþingis að gjör­breyta hlut­verki Rík­is­út­varps­ins og skyld­um, þá er eðli­legt að fram fari umræða og þá með til­heyr­andi breyt­ingum á útvarps­lögum áður en tekin er ákvörðun um að lækka útvarps­gjald.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None