Stjórn Strætó hefur ekki rætt um að hætta - fundar með eigendum í dag

9954291586_af5e4664c8_k-1-765x510.jpg
Auglýsing

Stjórn og eig­endur Strætó, það er sveit­ar­fé­lögin Reykja­vík­ur­borg, Kópa­vogs­bær, Hafn­ar­fjarð­ar­bær, Garða­bær, Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes­kaup­stað­ur, ætla að funda í hádeg­inu til að fara yfir atvikið sem kom upp í gær þegar átján ára þroska­skert stúlka gleymd­ist í bíl Ferða­þjón­ustu fatl­aðra í sex klukku­stund­ir.

Þar stendur til að skipa bráða­birgða­stjórn yfir Ferða­þjón­ustu fatl­aðra undir for­mennsku Stef­áns Eiríks­son­ar, sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar. Þetta var ákveðið á fundi í morg­un, sem Dagur B. Egg­erts­son boð­aði til, en hann sátu meðal ann­ars odd­vitar stjórn­mála­flokk­anna í borg­ar­stjórn ásamt for­manni og vara­for­manni stjórnar Strætó.

„At­burðir gær­dags­ins hjá ferða­þjón­ustu fatl­aðra eru litnir grafal­var­legum augum hjá aðild­ar­sveit­ar­fé­lögum Strætó,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarn­ann.

Auglýsing

Biður fjöl­skyldu Ólafar afsök­unar



„Þetta er hræði­legt atvik og bara óskilj­an­legt að þetta skyldi hafa komið upp og ég vil biðja fjöl­skyldu Ólafar og hana sjálfa inni­lega afsök­un­ar,“ segir Kristín Soffía Jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og vara­for­maður stjórnar Strætó í sam­tali við Kjarn­ann. „Nú verður farið yfir alla verk­ferla, skoðað hvernig þetta gat komið upp og komið í veg fyrir að þetta geti gerst aft­ur. Svo verður skoðað hvort brota­lömin sem virð­ist vera í Ferða­þjón­ustu fatl­aðra sé slík að hún kalli á rót­tækar aðgerð­ir.“

Bergur Þorri Benja­míns­son, vara­for­maður Sjálfs­bjarg­ar, sagði í fréttum RÚV í morgun að sveit­ar­stjórnir hafi ekki hlustað á við­var­anir fyrir ára­mót um að breyt­ingar á ferða­þjón­ustu fatl­aðra væru ekki nógu vel und­ir­bún­ar. „Við getum öll sagt að það fór greini­lega eitt­hvað úrskeiðis við inn­leið­ingu á þessum breyt­ing­um, en það hefur verið mikið álag á starfs­fólk og ég finn líka til með bíl­stjór­an­um. Þetta er hræði­legt óhapp. Við þurfum núna að bregð­ast við og leggj­ast í nafla­skoðun og gera allt sem hægt er til að bæta úr því ástandi sem hefur skap­ast og tryggja að þjón­ustan sé góð fyrir alla og þetta sé við­un­andi starfs­um­hverfi fyrir starfs­fólkið okkar og að við rekum ferða­þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem við getum verið stolt af. Annað er óásætt­an­leg­t,“ segir Kristín Soff­ía.

Stjórnin ætlar ekki að stíga til hliðar



Hún segir það ekki hafa komið til tals innan stjórn­ar­innar að hún axli ábyrgð á atvik­inu með því að stíga til hlið­ar. „Það hefur ekki verið rætt að við förum frá, enda held ég að það væri ekki endi­lega það besta í stöð­unni. Það kom ný stjórn inn í sum­ar, en þá var vinna við breyt­ingar á ferða­þjón­ust­unni komin af stað. Við lentum í að þurfa að skipta um fram­kvæmda­stjóra á svip­uðum tíma og ég held að það sé bara nauð­syn­legt núna að nú sé fólk í vinnu við að leysa þetta frekar en að við förum í burt­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None