Stjórnarformaður FME sagður hafa hagnast um tæpan milljarð

fme.jpg
Auglýsing

Halla Sig­rún Hjart­­ar­dótt­ir, stjórn­­­ar­­for­maður Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins (FME), hagn­að­ist um lið­lega 830 millj­­ón­ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­­­fé­lag­inu P/​F Magn í lok árs 2013. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Í blað­inu kemur enn fremur fram að Halla Sig­rún hafi neitað því að hafa átt í félag­inu til þessa, en hún var skipuð for­maður stjórnar FME í des­em­ber í fyrra.

Í blað­inu segir að fé­lag í henn­ar eigu hafi farið með 22% eign­­ar­hlut í Heddu eign­­ar­halds­­­fé­lagi. Það fé­lag átti 66% hlut í P/​F Magn og 25% hlut í Skelj­ungi. Sam­tals nam hagn­aður Heddu af sölu á hlut­un­um 3,8 millj­­örðum árið 2013, sam­kvæmt frá­sögn blaðs­ins.

Sam­­kvæmt heim­ild­um Morg­un­­blaðs­ins, sem vitnað er til í grein­inni, eign­að­ist Halla hlut í Heddu þegar hjón­in Svan­hild­ur Nanna Vig­­fús­dótt­ir og Guð­mund­ur Örn Þórð­ar­­­son, sem áttu þá P/​F Magn og Skelj­ung á Íslandi, seldu 66% hlut í fé­lag­inu.

Auglýsing

Halla Sigrún Hjartardóttir stjórnarformaður FME. Halla Sig­rún Hjart­ar­dóttir stjórn­ar­for­maður FME.

Í Morg­un­blað­inu segir að, ásamt Höllu hafi Ein­ar Örn Ólafs­­son, þáver­andi for­­stjóri Skelj­ungs, og Kári Þór Guð­jóns­­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi sam­­starfs­­fé­lagi Höllu og Ein­­ars í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­­­banka, keypt 22% hlut hvor um sig í fé­lag­inu. Við kaup­in eign­uð­ust þau meiri­hluta í P/​F Magn.



Svan­hild­ur og Guð­mund­ur keyptu P/​F Magn af þrota­­búi Fons vorið 2009 og nam kaup­verðið aðeins á þriðja hund­rað millj­­ón­um, sam­­kvæmt upp­­lýs­ing­um Morg­un­­blaðs­ins. Var fé­lagið selt, ásamt Skelj­ungi, fyr­ir átta millj­­arða í árs­­lok 2013.

Halla Sig­rún var skipuð stjórn­ar­for­maður FME í des­em­ber í fyrra af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra. Hún hafði áður starfað hjá Straumi í tvö ár en starfs­lok hennar þar bar skyndi­lega að. Full­yrt var í fjöl­miðlum að starfs­lokin hefðu verið til­komin vegna þess að upp komst um fjár­fest­ingar hennar í Skelj­ungi og P/F Magn. Halla neit­aði því í sam­tali við DV og sagð­ist aðspurð að hún ætti ekk­ert í Skelj­ungi eða félögum sem tengj­ast olíu­fé­lag­inu. „Ég vil ekki tjá mig um fjár­fest­ingar mínar í fjöl­miðlum […] Ég hef ekki átt nein við­skipti við Skelj­ung umfram það að kaupa bens­ín.“ Hún neitar því að komið hafi upp trún­að­ar­brestur á milli hennar og Straums áður en hún lét af störfum hjá bank­an­um. „Nei, alls ekki.“ Halla Sig­rún seg­ist kann­ast við þessa „leið­in­legu kjafta­sögu“ en segir að hún vilji ekki ræða málið í fjöl­miðl­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None