Stofnaður verði sjóður fyrir þá sem vilja gefa frá sér leiðréttinguna

skuldanidurfelling.jpg
Auglýsing

Mar­ínó G. Njáls­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður hjá Hags­muna­sam­tökum heim­il­anna, skorar á rík­is­stjórn­ina að koma á fót sér­stökum sjóð­i, þar sem lagt verður inn fé úr leið­rétt­ing­unni frá fólki ­sem ekki vill ­þiggja pen­inga­gjöf­ina úr rík­is­sjóði, og sjóðnum verði svo varið í önnur þjóð­þrifa­mál á Íslandi. Þetta er inn­tak pistils sem birt­ist á heima­síðu Mar­ínós í gær, en hann og eig­in­kona hans, Harpa Karls­dótt­ir eru bæði skrifuð fyrir áskor­un­inni.

Sóttu um leið­rétt­ing­una en vilja hana ekki núna



"Við hjónin feng­um, eins og margir aðrir lands­menn, til­kynn­ingu í vik­unni að við ættum rétt á leið­rétt­ingu vegna þeirra verð­tryggðu fast­eigna­lána sem við vorum með á árunum 2008 og 2009.  Við reikn­uðum aldrei með að upp­hæðin yrði há, en sóttum samt um.  Vegna breyttra aðstæð­an, þá teljum við hins vegar heið­ar­leg­ast af okkur að nýta okkur ekki leið­rétt­ing­una," segir í áskor­un­inni.

"Það er svo sem úr okkar höndum hvernig þessum pen­ingum verður ráð­stafað, fyrst við munum ekki þiggja þá.  Okkur langar þó að skjóta þeirri hug­mynd að rík­is­stjórn­inni, að þeir pen­ingar sem svona falla til, lágar upp­hæðir eða háar, fari í sjóð sem hafi það þjóð­þrifa­verk­efni að byggja upp heil­brigð­is­kerfið í land­inu og bæta stöðu öryrkja og aldr­aðra.  Þannig að, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, við biðjum ykkar að leggja við hlustir og sjá til þess að þetta verði gert mögu­leg­t."

Þó nokkur hópur fólks hefur lýst því yfir, til að mynda á Face­book, að hann muni ekki þiggja "leið­rétt­ing­una," af ýmsum ástæð­um. Líf­leg og, oft og tíð­um, heiftug umræða hefur fylgt í kjöl­farið þar sem hóp­ur­inn hefur meðal ann­ars verið gagn­rýndur fyrir að hafa sótt um leið­rétt­ingu sem hann svo ekki vildi.

Auglýsing

Skora sér­stak­lega á stjórn­mála­leið­toga að hafna leið­rétt­ing­unni



Hjónin skora jafn­framt á fyr­ir­tæki lands­ins að greiða litlar eða stjórar fjár­hæðir í sjóð­inn.

"Þessu til við­bótar viljum við hjónin skora á alla sem sóttu um og geta fengið leið­rétt­ingu, en telja sig ekki þurfa á henni að halda, telja upp­hæð­ina svo litla að hún skipti ekki máli, telja sig fá óbragð í munn­inn við að þiggja hana, telja leið­rétt­ing­una vera illa með­ferð á almannafé eða hafa talað gegn leið­rétt­ing­unni af hvaða ástæðu sem er, að þiggja ekki leið­rétt­ing­una með ósk um að sú upp­hæð, sem þeim var úthlut­að, fari í sjóð til upp­bygg­ingar á heil­brigð­is­kerf­inu og til mál­efna öryrkja og aldr­aðra.  Sér­stak­lega skorum við á for­menn  stjórn­mála­flokka á þingi, sem sóttu um og geta fengið leið­rétt­ingu sinna lána, að gera slíkt hið sama."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None