Stór hluti starfsfólks Stjórnarráðsins þekkir siðareglur ekki vel

stjornarrad.jpg
Auglýsing

Stór hluti starfs­fólks Stjórn­ar­ráðs Íslands þekkir ekki þær siða­reglur sem settar voru fyrir það árið 2012. Lítil áhersla hefur verið lögð á fræðslu og eft­ir­fylgni til að tryggja að regl­urnar komi að til­ætl­uðum notum og því ríkir óvissa um hvort þær hafi stuðalað að því að efla fag­leg vinnu­brögð. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar til Alþingis sem heitir „Siða­reglur fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands“ og var birt í morg­un.

Sam­hæf­ing­ar­nefnd ekki starf­andi



Jó­hanna Sig­urð­ar­dótt­ir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi árið 2012 siða­reglur fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands. Þeim var ætlað að efla fag­leg vinnu­börgð og auka traust á stjórn­sýsl­unni með því að beina til opin­berra starfs­manna það sem kallað var mik­il­vægum sið­ferð­is­legum gildum og hvetja þá til að hafa þau að leið­ar­ljósi í dag­legum störfum sín­um. Í regl­unum er meg­in­á­hersla á ábyrgð og skyldu starfs­manna til að starfa í þágu almenn­ings og koma þannig fram að beri megi traust til þeirra og emb­ætt­anna sem þeir eru full­trúar fyr­ir.

Rík­is­end­ur­skoðun fram­kvæmdi úttekt á inn­leið­ingu regln­anna og í skýrsl­unni sem birt var í morgun er farið yfir nið­ur­stöður henn­ar. Þar kemur fram að lang­flestir starfs­menn Stjórn­ar­ráðs­ins telji regl­urnar mik­il­vægan þátt í störfum sínum og hlut­falls­lega fáir telji að það þurfi að breyta þeim.

Þá kom í ljós að óvissa ríkir um hvort regl­urnar hafi stuðlað að því að efla fag­leg vinnu­brögð innan Stjórnarráðsins

Auglýsing

Í skýrsl­unni segir einnig að „stór hluti starfs­fólks telur sig ekki þekkja regl­urnar vel og einnig kom fram að lítil áhersla hefur verið lögð á að fylgja þeim eftir með skipu­legri fræðslu og eft­ir­fylgni og tryggja þar með að þær komi að til­ætl­uðum not­u­m[...]Þá kom í ljós að óvissa ríkir um hvort regl­urnar hafi stuðlað að því að efla fag­leg vinnu­brögð innan Stjórn­ar­ráðs­ins“.

Sam­hliða þeirri ákvörðun að setja starfs­mönnum Stjórn­ar­ráðs­ins siða­reglur var ákveðið að for­sæt­is­ráð­herra ætti að skipa, til þriggja ára í senn, sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferð­is­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una. Slík nefn er hins vegar ekki starf­andi í dag.

Hvetja ráðu­neytin til breyt­inga



Rík­is­end­ur­skoðun hvetur for­sæt­is­ráðu­neyti og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti til að tryggja starfs­fólki ráðu­neyta reglu­bundna fræðslu um siða­regl­urnar og for­sæt­isáðu­neytið beiti sér fyrir því að „ráðu­neytin fylgi sam­ræmdri stefnu við að ná þeim mark­miðum sem regl­urnar kveða á um. Enn fremur er ráðu­neytið hvatt til að skipa að nýju sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una í sam­ræmi við ákvæði laga þar um. Sé ekki talin þörf fyrir þá nefnd beri að breyta lög­um. Loks hvetur Rík­is­end­ur­skoðun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti til að tryggja að starfs­fólk Rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins og verk­takar sem starfa á vegum ráðu­neyt­anna fái reglu­lega fræðslu um inn­tak siða­regln­anna“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None