Strætómiðinn upp í 550 krónur – Gjaldskráin hækkuð um 12,5 prósent

Stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að hækka gjaldskrána til að „draga úr þörf á frekari hagræðingu“ í leiðakerfinu. Einnig ætla sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins að „skoða“ að leggja félaginu til aukið rekstrarfé.

Staða Strætó bs. hefur verið þung í kjölfar heimsfaraldursins, sem dróg verulega úr farþegatekjum. Í ár hafa svo orðið töluverðar hækkanir á olíu, sem stór hluti flotans er enn háður.
Staða Strætó bs. hefur verið þung í kjölfar heimsfaraldursins, sem dróg verulega úr farþegatekjum. Í ár hafa svo orðið töluverðar hækkanir á olíu, sem stór hluti flotans er enn háður.
Auglýsing

Einn miði í stræt­is­vagn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun kosta 550 krónur frá og með 1. októ­ber, en fyrra verð var 490 krón­ur. Einnig hækka árskort og mán­að­ar­kort í vagn­ana um sam­svar­andi hlut­fall, eða 12,5 pró­sent.

Ákvörðun um þessa hækkun var tekin á stjórn­ar­fundi Strætó 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, en í frétta­til­kynn­ingu frá Strætó segir að hækk­unum sé ætlað að mæta almennum kostn­að­ar­verðs­hækk­unum á aðföngum Strætósvo sem olíu­verðs­hækk­unum og kostn­aði vegna vinnu­tíma­stytt­ing­ar, sem hafi „haft veru­leg áhrif á rekst­ur­inn“.

„Ávallt er reynt að stilla öllum verð­hækk­unum Strætó í hóf og er hækk­un­inni ætlað að draga úr þörf á frek­ari hag­ræð­ingu í leið­ar­kerfi Strætó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Jafn­framt munu sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skoða að styrkja rekstur Strætó frekar en gert var ráð fyrir í fjár­hags­á­ætlun árs­ins 2022,“ segir í til­kynn­ingu frá Strætó.

Auglýsing

Gjald­skrá Strætó var síð­ast hækkuð um ára­mótin 2020-21 en tók þó einnig smá­vægi­legum breyt­ingum við inn­leið­ingu Klapp-­for­rits­ins undir lok síð­asta árs.

Frá því í jan­úar 2021 og þar til í ágúst síð­ast­liðnum hækk­aði almennt verð­lag á Íslandi um 13,3 pró­sent og eru hækk­anir á far­gjöldum Strætó, upp á 12,5 pró­sent sem áður seg­ir, því ekki að halda í við verð­bólgu á þessu tíma­bili.

Árskort full­orð­inna í 90 þús­und

Breyt­ing­arnar á gjald­skránni þýða að árskort full­orð­inna fer úr 80 þús­und krónum í 90 þús­und krón­ur, mán­að­ar­kort full­orð­inna fer úr 8 þús­und krónum í 9 þús­und krón­ur. Árskort fyrir ung­menni og aldr­aða fara úr 40 þús­und krónum í 45 þús­und og mán­að­ar­kort úr 4.000 krónum í 4.500 krón­ur.

Árskort öryrkja hækka úr 24.000 krónum í 27.000 krónur og mán­að­ar­kort öryrkja fer úr 2.400 krónum í 2.700 krón­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent