Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 6 prósent. Stýrivextir, sem ákvarða fjármagnskostnað heimila og fyrirtækja, hafa nú verið hækkaðir við síðustu tíu vaxtaákvarðanir nefndarinnar, en þeir voru 0,75 prósent í maí í fyrra.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að verðbólga hafi aukist á ný í október og mælst 9,4 prósent, verðhækkanir séu á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hafi áfram aukist. Gert er ráð fyrir því að verðbólgan verði 9,4 prósent að meðaltali núna á síðasta ársfjórðungi, en að hún taki svo smám saman að hjaðna og verði komin niður í 4,5 prósent á síðasta ársfjórðungi næsta árs.
Þar segir einnig að vísbendingar séu um að kjölfesta verðbólguvæntinga í verðbólgumarkmiði Seðlabankans hafi veikst, og því gæti tekið lengri tíma en ella að ná verðbólgu í markmið. Að auki hafi gengi krónunnar lækkað frá því að peningastefnunefnd kom samn í byrjun október og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði til lengri tíma hækkað nokkuð.
„Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 5,6% í ár. Horfur fyrir næsta ár hafa batnað og nú er spáð 2,8% hagvexti í stað 1,9% í ágúst. Skýrist það af horfum um hraðari vöxt innlendrar eftirspurnar en áður var talið. Spenna á vinnumarkaði er enn töluverð þótt heldur hafi dregið úr henni.
Peningastefnunefnd mun áfram tryggja að taumhald peningastefnunnar sé nægjanlegt til að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu misserum,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar.
Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar verður í febrúar.