Stýrivextir orðnir 6 prósent: Hækka um 0,25 prósentustig

Seðlabankinn hefur nú hækkað vexti tíu vaxtaákvarðanir í röð, alls um 5,25 prósentustig frá því í maí 2021, er stýrivextir voru 0,75 prósent.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka stýri­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því 6 pró­sent. Stýri­vext­ir, sem ákvarða fjár­­­magns­­kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja, hafa nú verið hækk­­aðir við síð­­­ustu tíu vaxta­á­kvarð­­anir nefnd­­ar­inn­­ar, en þeir voru 0,75 pró­­sent í maí í fyrra.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að verð­bólga hafi auk­ist á ný í októ­ber og mælst 9,4 pró­sent, verð­hækk­anir séu á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­bólga hafi áfram auk­ist. Gert er ráð fyrir því að verð­bólgan verði 9,4 pró­sent að með­al­tali núna á síð­asta árs­fjórð­ungi, en að hún taki svo smám saman að hjaðna og verði komin niður í 4,5 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi næsta árs.

Auglýsing

Þar segir einnig að vís­bend­ingar séu um að kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga í verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans hafi veikst, og því gæti tekið lengri tíma en ella að ná verð­bólgu í mark­mið. Að auki hafi gengi krón­unnar lækkað frá því að pen­inga­stefnu­nefnd kom samn í byrjun októ­ber og verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði til lengri tíma hækkað nokk­uð.

„Sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans er gert ráð fyrir að hag­vöxtur verði 5,6% í ár. Horfur fyrir næsta ár hafa batnað og nú er spáð 2,8% hag­vexti í stað 1,9% í ágúst. Skýrist það af horfum um hrað­ari vöxt inn­lendrar eft­ir­spurnar en áður var talið. Spenna á vinnu­mark­aði er enn tölu­verð þótt heldur hafi dregið úr henni.

Pen­inga­stefnu­nefnd mun áfram tryggja að taum­hald pen­inga­stefn­unnar sé nægj­an­leg­t til að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu miss­erum,“ segir í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar­inn­ar.

Næsta vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar verður í febr­ú­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent