Styrmir Gunnarsson látinn

Styrmir Gunnarsson, sem sat á ritstjórastóli Morgunblaðsins frá 1972 til 2008, lést á heimili sínu í gær, 83 ára að aldri.

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, er látinn.
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, er látinn.
Auglýsing

Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, lést á heim­ili sínu í gær, 83 ára að aldri. Greint er frá and­láti hans í Morg­un­blað­inu í dag. Styrmir hafði verið að glíma við afleið­ingar heilaslags sem hann fékk fyrr á þessu ári.

Greint er frá andláti Styrmis á forsíðu Morgunblaðsins í dag.

Styrm­ir var mennt­aður lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og lauk emb­ætt­is­­prófi frá skól­anum árið 1965. Hann starf­aði hins vegar mest­alla starfsævi sína sem blaða­maður og síðar rit­stjóri á Morg­un­blað­inu, en þar hóf hann störf árið 1965 eftir að hafa skrifað í blaðið að stað­aldri utan rit­stjórnar í nokkur ár þar á und­an.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins af and­láti Styrmis segir að hann hafi strax og hann hóf störf sum­arið 1965 byrjað að fást við rit­stjórn­ar­skrif í Stak­steina og for­ystu­greinar blaðs­ins.

Hann varð síðan aðstoð­ar­rit­stjóri árið 1971 og rit­stjóri 1972, ásamt þeim Matth­í­asi Johann­es­sen og Eyjólfi Kon­ráði Jóns­syni.

Auglýsing

Á rit­stjóra­stóli Morg­un­blaðs­ins sat Styrmir síðan óslitið allt þar til hann lét af störfum fyrir ald­urs sakir þann 2. júní árið 2008, en þá stóð Styrmir á sjö­tugu. Þá hafði hann starfað 43 ár á blað­inu. Sein­ustu sjö árin í starfi rit­stýrði hann blað­inu einn, eftir að Matth­ías Johann­es­sen lét af störf­um.

Styrmir hélt áfram virkri þátt­töku í sam­fé­lags­um­ræð­unni eftir að hann lét af störfum á Morg­un­blað­inu og eftir hann liggja nokkrar bæk­ur, flestar um íslensk þjóð­fé­lags­mál.

Hann hefur und­an­farin miss­eri ritað reglu­lega dálka í Morg­un­blað­ið. Sá síð­asti birt­ist í dag – og segir í frétt Morg­un­blaðs­ins að það hafi verið eitt af hinstu verkum Styrmis að senda hann inn til birt­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent