„Sumt fólk tók skellinn á meðan aðrir mökuðu krókinn“

Forseti ASÍ segir að þegar fólk, sem hefur verið svipt atvinnuöryggi sínu til lengri tíma, les tekjublaðið sitji eftir sú eðlilega tilfinning að sumt fólk hafi tekið skellinn á meðan aðrir hafi makað krókinn.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Auglýsing

Drífa Snæ­dal telur það sjálf­sagt og eðli­legt að Íslend­ingar fái upp­lýs­ingar um tekjur fólks og ekki síst fram­lag til sam­fé­lags­ins og þeirra kerfa sem „við treystum öll á og gætum ekki lifað án“. Þetta kemur fram í viku­legum pistli Drífu í dag en tekju­blöð Frjálsrar versl­unar og DV komu út í vik­unni.

Það sem veki athygli að þessu sinni umfram annað séu laun for­stjóra og yfir­manna hjá þeim fyr­ir­tækjum sem hafa fengið hvað hæstu rík­is­styrk­ina til að við­halda ráðn­inga­sam­bönd­um, fengið tekju­falls­styrki, upp­sagn­ar­styrki og nið­ur­greidd laun til að ráða fólk aftur til starfa.

Segir hún að þegar fólk, sem hefur verið svipt atvinnu­ör­yggi sínu til lengri tíma og tekið skell­inn á þeim for­sendum að „við séum öll á sama bát­i“, les tekju­blaðið sitji eftir sú eðli­lega til­finn­ing að „sumt fólk tók skell­inn á meðan aðrir mök­uðu krók­inn“.

Auglýsing

„Öll við­brögð við umræðum um að nú þurfum við öll að leggj­ast á árarnar í atvinnu­líf­inu lit­ast af þeirri stað­reynd að við erum einmitt ekki öll á sama báti. Sett er krafa á lág­launa­fólk um að sýna atvinnu­rek­endum tryggð með því mæta aftur til erf­iðra starfa um leið og kallið kemur og sama hvaðan sem það kem­ur. Við­brögðin hljóta þó að lit­ast af tryggð þess sama atvinnu­lífs eða vinnu­staðar við starfs­fólk á erf­iðum tím­um,“ skrifar hún.

Kjarn­inn greindi frá því í vik­unni að tíu tekju­hæstu for­stjór­arnir hefðu sam­tals verið með 176,9 millj­ónir í tekjur á mán­uði árið 2020 og hefðu átta af þeim verið með yfir 12 millj­ón­ir. Tutt­ugu for­stjórar voru með yfir sex millj­ón­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent