Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur embætti ríkissaksóknara áfrýjað sýknudómi yfir Hannesi Smárasyni, fyrrverandi stjórnarformanni og forstjóra FL Group, í Sterling-málinu svokallaða til Hæstaréttar Íslands. Þá herma heimildir Kjarnans að áfrýjunarstefnan hafi enn ekki verið birt Hannesi eða verjanda hans, Gísla Guðna Hall.
Í ákæru sérstaks saksóknara var Hannesi gefið að sök fjárdráttur með því að hafa dregið sér tæpa þrjá milljarða króna af reikningi FL Group á meðan hann var stjórnarformaður félagsins. Fénu á Hannes svo að hafa ráðstafað til Fons eignarhaldsfélags, í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, sem notuðu það svo til að borga fyrir danska lággjaldaflugfélagið Sterling árið 2005.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. febrúar í fyrra. Héraðsdómur féllst á frávísunarkröfu Hannesar í mars, en Hæstiréttur ógilti síðar frávísunina í aprílmánuði síðastliðnum. Aðalmeðferð í málinu hófst loks þann 28. janúar, eða tæpum tíu árum eftir að hinn meinti fjárdráttur Hannesar átti sér stað.
Sérstakur saksóknari krafðist þess fyrir dómi að Hannes Smárason yrði dæmdur í tveggja til þriggja ára fangelsi, en Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp sýknudóm í málinu þann 18. febrúar síðastliðinn.