Tekjur og gjöld ríkissjóðs langt umfram áætlun

Bæði skatttekjur og útgjöld ríkissjóðs í fyrra reyndust vera töluvert meiri en ríkisstjórnin gerði ráð fyrir í fjárlögum sínum. Þrátt fyrir það dróst skuldahlutfallið saman á milli ára vegna mikils hagvaxtar.

Stjórnarráð Ríkisstjórn
Auglýsing

Hið opin­bera skil­aði 288,3 millj­arða króna halla í fyrra, sam­kvæmt nýbirtum tölum Hag­stofu um opin­ber fjár­mál. Hall­ann má að mestu leyti rekja til lakrar afkomu rík­is­sjóðs, en hann skil­aði 266 millj­arða króna halla, sem er tveimur millj­örðum krónum lak­ari nið­ur­staða en gert var ráð fyrir í fjár­lögum í fyrra.

Mik­ill halli en lægra skulda­hlut­fall

Halli hins opin­bera nam alls 8,9 pró­sent af lands­fram­leiðslu og jókst á milli ára. Hann hefur ekki verið jafn­mik­ill frá árinu 2008, þegar hann nam rúmum tólf pró­sentum af lands­fram­leiðslu.

Sam­kvæmt Hag­stofu juk­ust tekjur um 6,1 pró­sent á síð­asta ári, en skuldir um 7,4 pró­sent. Þrátt fyrir skulda­vöxt var hag­vöxt­ur­inn enn meiri í fyrra, sem leiddi til þess að skulda­hlut­fall rík­is­sjóðs, að með­töldum líf­eyr­is­skuld­bind­ing­um, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu dróst saman úr 100,3 pró­sentum í 96,2 pró­sent. Skulda­hlut­fall sveit­ar­fé­lag­anna lækk­aði sömu­leið­is, úr 13,8 pró­sentum í 13,7 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Auglýsing

Van­mat á tekjum og gjöldum

Í fjár­lögum fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs myndu nema 772 millj­örðum króna í fyrra. Tölur Hag­stofu benda til þess að þetta hafi verið tölu­vert van­mat, en sam­kvæmt þeim námu tekj­urnar 911 millj­örðum króna.

Þar mun­aði mest um tekjur af virð­is­auka­skatti, sem spáð var að yrði 233 millj­arðar króna, en reynd­ust vera 125 millj­örðum krónum meiri. Sömu­leiðis voru tekjur af tekju­skati ein­stak­linga tíu millj­örðum krónum meiri en spáð var, auk þess sem tekjur af trygg­inga­gjöldum og tekju­skatti lög­að­ila voru van­metin um tvo millj­arða hvort um sig.

Einnig voru útgjöld rík­is­sjóðs van­metin í fjár­lög­un­um, en talið var að þau yrðu 1.036 millj­arðar króna í fyrra. Þau reynd­ust hins veg­ar­vera 142 millj­örðum meiri, eða um 1.178 millj­arðar króna. Afkom­an, sem búist var við að yrði 264 millj­arðar króna, reynd­ist því vera tveimur millj­örðum krónum lak­ari, eða um 266 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent